Skoðun

Grafið undan réttindum

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Svokallaður Roe v. Wade dómur féll í hæstarétti Bandaríkjanna árið 1973 og gerði fóstureyðingar löglegar þar í landi. Í málinu reyndi á hvort lög sem bönnuðu fóstureyðingar og voru sett af löggjafarþingi í Texas stæðust ákvæði um friðhelgi einkalífsins í stjórnarskránni. Meirihluti hæstaréttar komst að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Lögin skertu um of rétt kvenna til að gangast undir fóstureyðingu. Þessi dómur hefur verið umdeildur síðan hann féll og hefur reynst þrætuepli á milli frjálslyndra og íhaldsmanna í Bandaríkjunum svo áratugum skiptir.

Nú virðist sem andstæðingar fóstureyðinga vestanhafs sjái sér leik á borði eftir að Donald Trump tilnefndi hinn hægrisinnaða íhaldsmann Brett Kavanaugh sem dómara við hæstarétt Bandaríkjanna á mánudag. Fjölmiðlar vestanhafs segja einsýnt að látið verði reyna á Roe v. Wade dóminn á allra næstu misserum verði Kavanaugh staðfestur af öldungadeildinni í embætti. Þá sé það morgunljóst að rétturinn muni færast til hægri í niðurstöðum sínum. Dómaraefnið hefur þó ekki lýst yfir afstöðu sinni til fóstureyðinga opinberlega.

Dómarar réttarins eru níu talsins. Eins og gefur að skilja hafa ákvarðanir þeirra mikið að segja um réttarfar í landinu öllu. Vægið á milli frjálslyndra dómara og íhaldssamra hefur verið nokkuð jafnt undanfarin misseri. Sá sem nú lætur af störfum, Anthony Kennedy, er alla jafna talinn íhaldssamur í skoðunum. Hann átti það hins vegar til að sveiflast í afstöðu sinni í stórum málum. Þannig dæmdi hann til að mynda með lögum um samkynja hjónabönd og fóstureyðingar.

Sjálfur hefur Trump lagst gegn fóstureyðingum, en það gerði hann opinberlega í kosningabaráttu sinni. Afar sjaldgæft er að forseti fái að velja tvo dómara á svo skömmum tíma, líkt og Trump hefur gert, en hann valdi einnig hægrisinnaðan arftaka Antonins Scalia við réttinn, stuttu eftir embættistöku. Sérfræðingar segja að Trump hafi nú gefist fágætt tækifæri til að hafa víðtæk áhrif á bandarískt réttarfar næstu árin eða áratugina.

Ekki þarf að hafa mörg orð um þann sjálfsagða rétt kvenna að ráða yfir eigin líkama. Ástæður að baki því að kona vilji binda enda á meðgöngu eru fjölmargar. Ofbeldissambönd, atvinnuleysi, tímasetning, aðstæður, fjárhagur, að vilja ekki eignast börn og ýmislegt fleira getur spilað inn í þá ákvörðun. Okkur kemur það einfaldlega ekki við.

Á Íslandi búum við ekki í samfélagi sem skilgreinir frjóvguð egg sem fóstur og fóstur sem manneskju sem njóti sambærilegra réttinda og barn eða fullorðin manneskja. Sem betur fer. Ólíklegt er að slíkt afturhvarf til fortíðar verði hér á landi. En meiriháttar lagasetningar í heimsveldi á borð við Bandaríkin hafa óneitanlega áhrif víðar en í Bandaríkjunum einum.

Svo er það hitt, að ákvarðanir og gjörðir þjóðarleiðtogans í Bandaríkjunum undanfarið gefa ekki mikið tilefni til bjartsýni í þessum efnum.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×