Vildi fá tækifæri til að skoða og kynnast íslensku fyrirliðunum í svissnesku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2018 13:35 Rúnar Már Sigurjónsson er fyrirliði hjá liði Grasshopper Club Zurich. Vísir/Getty
Erik Hamrén, nýr landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, fundaði með blaðamönnum í dag þar sem hann opinberaði sinn fyrsta landsliðshóp. Meðal leikmanna sem koma nú inn en voru ekki með á HM í Rússlandi í sumar voru tveir leikmenn úr svissnesku deildinni en fyrsti mótherji Íslands undir stjórn Hamrén er einmitt leikur á móti Sviss. Erik Hamrén talaði um það á fundunum í dag að hann vildi fá að kynnast betur þeim Rúnari Má Sigurjónssyni og Guðlaugi Victori Pálssyni og benti á að þeir séu báðir nú fyrirliðar hjá sínum liðum í svissnesku deildinni. Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið fyrirliði Grasshopper Club Zurich í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins og hefur gefið 3 stoðsendingar á félaga sína í þeim. Guðlaugur Victor Pálsson hefur verið fyrirliði FC Zürich í byrjun tímabilsins og spilað allar 360 mínúturnar á leiktíðinni til þessa. Aðstoðarmaður Erik Hamrén segist hafa talað við þá Rúnar Má og Guðlaug Victor og farið yfir málin með þeim. Rúnar Már hefur verið meira í kringum liðið og var í hópnum á EM í Frakklandi en það er langt síðan að Guðlaugur Victor var með landsliðinu. „Við fórum aðeins yfir málin með þeim. Þetta er nýtt upphaf fyrir alla og ég vona að leikmenn líti á það þannig. Ég vina að allir fari upp á tærnar og þetta verði holl samkeppni fyrir alla,“ sagði aðstoðarþjálfarinn Freyr Alexandersson.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Sjá meira