Hagnaður Brims 1,9 milljarðar Kristinn Ingi Jónsson skrifar 22. ágúst 2018 05:55 Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda. Fréttablaðið/Anton Brink
Brim, útgerðarfélag bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona, hagnaðist um 1.915 milljónir króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi, en félagið tapaði 100 milljónum króna árið áður sem skýrist af 2,1 milljarðs króna gjaldfærslu vegna gengisdóms. Rekstrartekjur útgerðarfélagsins námu 19.300 milljónum króna á síðasta ári og jukust um 3,3 prósent frá fyrra ári þegar þær voru 18.671 milljón króna. Kostnaðarverð seldra vara var ríflega 16.988 milljónir króna í fyrra borið saman við 16.413 milljónir króna árið 2016. Var rekstrarhagnaður Brims 2.385 milljónir króna á árinu og jókst um 126 prósent á milli ára. Eignir útgerðarfélagsins námu 60.674 milljónum króna í lok síðasta árs, samkvæmt efnahagsreikningi félagsins, en þar af voru aflaheimildir þess metnar á tæpar 24.817 milljónir króna. Eigið fé Brims var 24.296 milljónir króna í lok ársins og eiginfjárhlutfallið um 40 prósent. Greiddur var arður að fjárhæð 296 milljónir króna til hluthafa á síðasta ári, að því er segir í ársreikningnum. Brim keypti 34 prósenta hlut í HB Granda í apríl fyrir 21,7 milljarða króna en kaupin voru fjármögnuð með handbæru fé, lántöku og sölu eigna, að því er segir í ársreikningnum, en félagið seldi meðal annars frystitogarann Brimnes RE-27.
Birtist í Fréttablaðinu Markaðir Sjávarútvegur Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira