Sólveig Guðmundsdóttir, annar eiganda Culiacan, segist því gera sér grein fyrir að þær Steingerður Þorgilsdóttir séu ekki að finna upp hjólið í þessum efnum. Engu að síður hafi þetta fyrirkomulag gefið góða raun úti á Granda og á Hlemmi, rétt eins og úti í hinum stóra heimi. Fátt sé því til fyrirstöðu að mathöll plummi sig einnig á Bíldshöfða; þar sé lifandi atvinnustarfsemi og stutt í fjölmenn íbúðahverfi.
Þar að auki sé mikil uppbygging fyrirhuguð í og við Höfðahverfið í Reykjavík á næstu árum. Ártúnshöfði er til að mynda skilgreindur sem einn stærsti þéttingarreitur borgarinnar, en gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðahúsnæðis og innviða í hverfinu fyrir allt að 11.500 manns.
Sólveig segir að þær Steingerður hafi því dottið í lukkupottinn þegar þær fengu húsnæðið á Bíldshöfða. Um er að ræða rými í Bíldshöfða 9, sem áður hýsti Bílanaust. Mathöllin verður á jarðhæð, hægra megin við aðalinngang hússins og verður hún sýnileg frá aðalumferðaræðum svæðisins.

Sólveig segir að mathallarfyrirkomulaginu fylgi ýmsir kostir. Með aukinni breidd í veitingaflórunni megi tryggja ólíka álagspunkta í húsnæðinu. „Það er til að mynda ekki mikið að gera hjá Culiacan á morgnanna og seinni part dags en það er kannski þannig hjá öðrum. Með því að hafa fjölbreytta flóru veitingastaða er hægt að nýta húsnæðið sem best yfir daginn,“ segir Sólveg. „Það er algjör óþarfi að vera með risastað sem aðeins er nýttur í hádeginu og á kvöldin.“
Þrátt fyrir að fyrsta auglýsingin fyrir mathöllina hafi verið send út á laugardag segir Sólveig að nú þegar sé farið að spyrjast fyrir um pláss. „Við vorum varla búnar að skrifa undir samninginn þegar fólk byrjaði að sækja um þannig að það er greinilega mikil spenna fyrir þessu.“ Hún áætlar að alls verði hægt að bjóða upp á 8 mismunandi veitingastaði í mathöllinni og að Culiacan verði þeirra á meðal.
Aðspurð um hvernig þau sjá höllina fyrir sér segir Sólveig að fyrst og fremst sé ætlunin að geta boðið upp á góðan og fjölbreyttan mat. Þannig geti hópar fólks komið saman í mathöllinni og allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fyrirhugað er að Mathöllin Bíldshöfða opni í desember næstkomandi, sem fyrr segir.