Haukur tók yfir stórleikinn: Skoraði sex af síðustu níu mörkum Selfyssinga Anton Ingi Leifsson skrifar 11. október 2018 12:00 Haukur var magnaður í gær. vísir/ernir
Selfoss vann öflugan sigur í Vestmannaeyjum í gær er Selfyssingar unnu tveggja marka sigur, 27-25, á fjórföldum meisturum ÍBV. Eyjamenn voru sterkari framan af og leiddu meðal annars með þremur mörkum í hálfleik, 15-12, en frábær síðari hálfleikur gestana skilaði þeim tveimur stigum.Í síðasta þætti af Seinni bylgjunni kallaði einn spekingur þáttarins, Jóhann Gunnar Einarsson, eftir meiru frá Hauki Þrastarsyni og setti hann á topp fimm lista sem Jóhann vildi sjá meira frá. Haukur svaraði kallinu og rúmlega það. Selfyssingurinn tók yfir leikinn í síðari hálfleik. Hann skoraði sjö mörk úr átta skotum, þar af sex af síðustu níu mörkum Selfyssinga. Auk þess að skora sex mörk sjálfur gaf hann fjórar stoðsendingar og ekki var hann slakur í varnarleiknum þar sem hann átti tvær löglegar stöðvanir. Gott að eiga hauk í horni í risa slag eins og í Eyjum í gær en á laugardaginn mætir Selfoss Ribnica frá Slóveníu í síðari leik liðanna í 2. umferð EHF-keppninnar. Selfoss tapaði fyrri leiknum í Slóveníu, 30-27.Haukur Þrastarson, leikmaður @selfosshandb, sýndi @Joigunnar svo sannarlega MEIRA í Suðurlandsslagnum í gær.Haukur í seinni hálfleik:7 mörk í 8 skotum, 4 sköpuð færi, 4 stoðsendingar og 2 löglegar stöðvanir á @HBSstatz Skoraði 6 af síðustu 9 mörkum Selfoss.#olisdeildin pic.twitter.com/MpUUmDbOkh— Seinni bylgjan (@Seinnibylgjan) October 11, 2018
Olís-deild karla Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira