Reyndi að spila án þess að vita að hún væri ristarbrotin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2018 10:00 Karen Knútsdóttir fagnar Íslandsmeistaratitlinum síðasta vor með félögum sínum í Framliðinu. Vísir/Vilhelm
Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik á árinu 2018 og mun því missa af mikilvægum leikjum landsliðsins í undankeppni HM. Karen meiddist á fæti í leik með Fram á móti HK 15. október síðastliðinn en þar vann Framliðið sinn fimmta leik í röð í Olís deild kvenna. Karen reyndi að spila næsta leik á móti ÍBV en það kom strax í ljós að það var ekki möguleiki. „Ég var bara á annarri og útilokað að harka eitthvað af sér,“ sagði Karen Knútsdóttir í viðtali við Ívar Benediktsson á Morgunblaðinu en þar staðfestir Karen meiðslin. Karen fékk það staðfest hjá lækni að hún væri ristarbrotin eftir að hafa kannað málið þegar batinn var hægur. Þetta er annað tímabilið í röð sem hún verður fyrir erfiðum meiðslum en í fyrravetur sleit hún hásin í upphafi tímabilsins. Karen snéri hinsvegar aftur undir lokin og hjálpaði Fram að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Nú mun Karen missa af fullt af leikjum með Fram auk undankeppni HM með íslenska landsliðinu. „Þetta er ömurlegt,“ sagði Karen ennfremur í fyrrnefndu viðtali. Fram byrjar heldur ekki vel án hennar en liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum frá því að Karen meiddist þar á meðal á móti botnliði Selfoss í síðasta leik.
Íslenski handboltinn Olís-deild kvenna Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira