Rússar komu í veg fyrir drónaárásir á HM í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2018 13:00 Rússar voru með mikla öryggisgæslu á HM í sumar. Vísir/Getty
HM í fótbolta í Rússlandi síðasta sumar gekk eins og í sögu en þar var íslenska landsliðið í fyrsta sinn með í úrslitakeppni HM. Framkvæmd keppninnar tókst frábærlega og íslenskir áhorfendur sem og aðrir fengu að lifa og njóta á ferðum sínum í Rússlandi. Stuðningsmenn liðanna héldu líka friðinn á mótinu og ekkert fréttist af tilraunum hryðjuverkamanna til að minna á sinn málstað. Það var þó ekki allt sem sýnist því Rússar segjast hafa með fyrirbyggjandi aðgerðum og vakandi auga komið í veg fyrir drónaárásir á HM síðasta sumar. Alexander Bortnikov, yfirmaður öryggissveitar rússneska ríkisins, segir frá þessu en Telegraph hefur það eftir honum. Bortnikov segir að öryggissveitir sínar hafi uppgötvað og komið í veg fyrir drónaárásir hryðjuverkamanna á meðan heimsmeistaramótinu stóð. Þúsundir lögreglumanna voru í fullri vinnu við eftirlitsstörf á mótinu og viðamikið eftirlitskerfi var notað á meðan heimsmeistaramótinu stóð í sumar. Það er því að þakka að umræddir hryðjuverkamenn náðu ekki að koma plönum sínum í framkvæmd. Fjórum meðlimum Pussy Riot tókst engu að síður að hlaupa inn á völlinn í úrslitaleiknum í Moskvu eins og frægt varð. Rússar greindu einnig frá því í apríl, tveimur mánuðum fyrir HM, að þeir höfðu stöðvað plön öfgamanna og fótboltabullna um hryðjuverk í borginni Samara.
HM 2018 í Rússlandi Andóf Pussy Riot Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Sjá meira