Sigrún Björk nýr framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2018 09:09 Sigrún Björk Jakobsdóttir gegndi embætti bæjarstjóra á Akureyri á árunum 2007 til 2009. Mynd/Isavia/Kristján Kristjánsson
Sigrún Björk Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia og hefur hún störf 4. desember. Í tilkynningu frá Isavia segir að Sigrún Björk hafi víðtæka reynslu á sviði ferðaþjónustu og sveitarstjórnarmála. Hún gegndi embætti bæjarstjóra á Akureyri á árunum 2007 til 2009, var hótelstjóri á Icelandair Hótel Akureyri 2011 til 2017 og síðan framkvæmdastjóri Sinnum heimaþjónustu. Í starfinu felst yfirumsjón með rekstri og þróun flugvallakerfis utan Keflavíkurflugvallar. Kerfið samanstendur af tólf áætlunarflugvöllum og á fjórða tug annarra flugvalla og lendingarstaða. Hún hefur meðal annars setið í stjórnum Samtaka ferðaþjónustunnar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsnets, þar sem hún hefur verið stjórnarformaður. Haft er eftir Sigrúnu Björk að innanlandsflugvellir á Íslandi séu gríðarlega mikilvægir innviðir fyrir samfélagið allt. „Rekstur þeirra skiptir afskaplega miklu fyrir fólk og ferðaþjónustu. […] Ég þekki vel í gegnum mín fyrri störf í sveitarstjórnarmálum og ferðaþjónustu að mörg og spennandi tækifæri liggja í innanlandsflugvallakerfinu sem hægt er að nýta mun betur. Þetta er krefjandi verkefni sem ég tek að mér og þakka ég það góða traust sem mér er sýnt með ráðningunni,“ segir Sigrún Björk.
Fréttir af flugi Vistaskipti Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira