Dæmin sýna hvað áföll geta verið mismunandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. nóvember 2018 14:45 Arna Hauksdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, er annar forsprakka rannsóknarinnar. Vísir/vilhelm
Fjórðungur kvenna hefur orðið fyrir nauðgun eða nauðgunartilraun á lífsleiðinni, samkvæmt fyrstu niðurstöðum í rannsóknarverkefninu Áfallasaga kvenna. Þá hafa 40% kvenna upplifað framhjáhald eða höfnun af hendi maka. Einn forsprakki rannsóknarinnar segir að enn eigi eftir að skoða hvort tengsl séu á milli kynferðisofbeldis og annarra áfalla á lífsleiðinni. Þá munu 50 þúsund konur til viðbótar fá boð um þátttöku í rannsókninni í nóvember. Vísindamenn við Háskóla Íslands hleyptu verkefninu af stokkunum vorið 2018. Rannsóknin miðar að því að skapa þekkingu um umfang, áhættuþætti og heilsufarslegar afleiðingar áfalla og ofbeldis sem konur verða fyrir. 50 þúsund konur hafa þegar fengið boð um þátttöku og hafa 23 þúsund þeirra nú svarað spurningalista sem finna má á vef rannsóknarinnar.Áföllin mismunandi Arna Hauksdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, er annar forsprakki rannsóknarinnar. Hún segir í samtali við Vísi að fyrstu niðurstöður varpi m.a. ljósi á það hversu fjölbreyttum áföllum konur geta orðið fyrir. „Við sjáum aðallega þetta með að fjórða hver kona sem er búin að svara hefur orðið fyrir nauðgun eða nauðgunartilraun. En við erum náttúrulega líka að skoða ótrúlega ólík og mismunandi áföll, þannig að þetta eru ekki bara ofbeldistengd áföll,“ segir Arna.Sjá einnig: Þakklátar konur strax byrjaðar að rjúka á hana í sundi „Við sjáum til dæmis að 40% hafa upplifað framhjáhald eða höfnun frá maka, og 30% hafa orðið fyrir erfiðri fæðingarreynslu. Þessi dæmi sýna hvað áföll geta verið mismunandi og þetta snýst ekki alltaf bara um ofbeldisáföllin, heldur er svo margt annað sem getur komið fyrir mann og getur síðan haft áhrif á heilsu og lífsgæði.“Hærra hlutfall en rannsóknir hafa sýnt Að sögn Örnu eru rannsakendur þó ekki byrjaðir að skoða tengsl á milli kynferðisofbeldis og annarra áfalla sem konur verða fyrir á lífsleiðinni. „En það hefur komið í ljós í erlendum og íslenskum rannsóknum að konur sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi geta upplifað ýmis vandkvæði í fæðingu, eða að barnið sem fæðist upplifi eitthvað slíkt.“Unnur Anna Valdimarsdóttir og Arna Hauksdóttir hafa fylgst að síðan þær hittust í Háskóla Íslands árið 1992. Þær stýra nú saman rannsókninni Áfallasaga kvenna.visir/stefanÞá er ljóst að hlutfall kvenna sem orðið hefur fyrir nauðgun eða nauðgunartilraun, samkvæmt þessum fyrstu niðurstöðum, er hærra en innlendar og erlendar rannsóknir hafa áður sýnt. Arna segir það hugsanlegt að hlutfallið sé svo hátt vegna þess að konur með áfallasögu kjósi frekar að taka þátt í rannsókninni. Hins vegar verði að hafa í huga að í kjölfar aukinnar samfélagsumræðu um kynbundið ofbeldi, m.a. í kjölfar #MeToo-byltingarinnar, hafi margar konur endurmetið upplifanir sínar. Þannig sé einnig hugsanlegt að þetta háa hlutfall endurspegli raunverulega tíðni þessara áfalla meðal kvenna á Íslandi. Frekari gagnasöfnun frá fleiri konum og gagnagreining á komandi mánuðum muni leiða það í ljós. Í lok janúar verður svo haldinn stór kynningarfundur um rannsóknina þar sem farið vur dýpra í niðurstöður og þær tengdar við þætti á borð við áfallastreitu.Eru í hálfleik Eins og áður segir hafa 23 þúsund konur af þeim 50 þúsund sem fengu boð tekið þátt í rannsókninni. Aðspurð segir Arna að aðstandendur séu ánægðir með þátttökuna auk þess sem von sé á fleiri þátttakendum. 50 þúsund konur til viðbótar fá boð um þátttöku í rannsókninni í nóvember. „Þetta eru 23 þúsund konur og við erum enn þá í fullum gangi. Við eigum eftir að senda beint boð á helminginn af okkar rannsóknarhópi, þannig að við lítum svo á að við séum í hálfleik og ætlum að klára þetta fljótlega eftir áramótin.“
Heilbrigðismál MeToo Tengdar fréttir Bestu vinkonur í vísindum Arna og Unnur hafa fylgst að síðan þær hittust í Háskóla Íslands árið 1992. 17. mars 2018 11:00 Tengsl á milli áfallastreituröskunar og sjálfsónæmissjúkdóma Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands og Karolinska Institutet í Stokkhólmi sýnir að fólk sem glímt hefur við áfallastreituröskun er í aukinni áhættu á að greinast síðar með sjálfsónæmissjúkdóma. 19. júní 2018 15:49 Þakklátar konur strax byrjaðar að rjúka á hana í sundi Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, er hæstánægð með viðbrögð við rannsókninni sem hleypt var af stokkunum í vikunni. 1. mars 2018 11:46 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfarenda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira
Bestu vinkonur í vísindum Arna og Unnur hafa fylgst að síðan þær hittust í Háskóla Íslands árið 1992. 17. mars 2018 11:00
Tengsl á milli áfallastreituröskunar og sjálfsónæmissjúkdóma Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands og Karolinska Institutet í Stokkhólmi sýnir að fólk sem glímt hefur við áfallastreituröskun er í aukinni áhættu á að greinast síðar með sjálfsónæmissjúkdóma. 19. júní 2018 15:49
Þakklátar konur strax byrjaðar að rjúka á hana í sundi Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, er hæstánægð með viðbrögð við rannsókninni sem hleypt var af stokkunum í vikunni. 1. mars 2018 11:46