HSÍ búið að selja alla sína miða á HM 2019 Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. nóvember 2018 15:00 Sérsveitin verður væntanlega í miklu stuði í München. vísir/daníel
Búast má við að minnsta kosti 500 Íslendingum á riðlakeppni HM í handbolta í janúar en íslenska liðið spilar sína leiki í München. Þýskaland og Danmörk halda mótið saman. Handknattleikssamband Íslands greinir frá því á Facebook-síðu sinni að allir 500 miðarnir sem það hafði milligöngu um fyrir HM eru seldir og því má búast við mikilli stemningu á leikjum strákanna okkar í janúar. Ef einhver fékk ekki miða í gegnum HSÍ en vill komast í stemninguna í Þýskalandi með íslenska liðinu er viðkomandi beint á miðasölu opinberrs söluaðila heimsmeistaramótsins en hana má finna hér. Strákarnir okkar eru í B-riðli með Evrópumeisturum Spánar, Króatíu, Makedóníu og svo Barein og Japan sem bæði eru með íslenska þjálfara, þá Aron Kristjánsson og Dag Sigurðsson. Leikirnir fara fram í Ólympíuhöllinni í München þar sem að okkar menn spila fimm leiki á einni viku. Fyrsti leikurinn er á móti Króatíu ellefta janúar og sá síðasti í riðlakeppninni á móti Makedóníu 17. janúar. Búið er að taka aftur upp milliriðla á HM eftir að einföld útsláttarkeppni var notuð nokkur mót í röð. Komist okkar menn áfram spila þeir í milliriðli eitt í hinni stórglæsilegu Lanxess-höll í Köln þar sem að Final Four í Meistaradeild Evrópu fer fram á hverju ári.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira