Dregur úr halla Skakka turnsins Atli Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2018 12:52 Framkvæmdir við byggingu turnsins hófust 1173. Þúsundir ferðamanna sækja turninn heim á hverju ári. Vísir/Frank Bienewald
Nokkuð hefur dregið úr halla Skakka turnsins í Pisa á síðustu árum og hefur verið haft á orði að hann kunni að standa frammi fyrir tilvistarkreppu. Talsmaður eftirlitshóps turnsins, sem hefur yfirumsjón með endurbótum á turninum, segir turninn nú „stöðugan og dragi nú hægt og rólega úr halla“ hans. Í frétt BBC kemur fram að dregið hafi úr halla hins 57 metra háa turns á síðustu tveimur áratugum. „Það er eins og turninn hafi yngst um tvær aldir,“ segir prófessorinn Salvatore Settis sem fer fyrir eftirlitshópnum.Var lokað 1990 Turninum var lokað fyrir ferðamönnum árið 1990 og var það í fyrsta sinn í átta hundruð ár sem grípa þurfti til slíkra ráðstafana. Var óttast að turninn myndi láta undan þunganum og hrynja, en á þeim tíma hallaði hann um 4,5 metra. Unnið var að endurbótum á árunum 1993 til 2001 og tókst þá að draga úr hallanum um 45 sentimetra. Nam kostnaðurinn um 32 milljarða króna. Framkvæmdir við byggingu turnsins hófust 1173 og tók hann að halla um fimm árum síðar, en jarðvegurinn undir turninum reyndist misharður undir norðurenda og suðurenda hans.
Ítalía Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Fleiri fréttir Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Sjá meira