Fyrrverandi glæpaforingi skotinn eftir bókakynningu í Kaupmannahöfn Atli Ísleifsson skrifar 20. nóvember 2018 10:24 Nedim Yasar sagði skilið við Los Guerreros árið 2012 og hefur síðan meðal annars starfað sem þáttastjórnandi Politiradio á útvarpsstöðinni 24/7.
Uppfært 12:33: Lögregla í Kaupmannahöfn hefur staðfest að Nedim Yaser hafi látist af sárum sínum. Fyrrverandi glæpaforingi og útvarpsmaður var skotinn eftir að hafa haldið bókakynningu í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Danskir fjölmiðlar segja að hinn 31 árs Nedim Yasar hafi verið skotinn utandyra á Hejrevej í norðvesturhluta Kaupmannahafnar. Yasar gaf nýverið út bókina Rødder, eða Rætur, þar sem hann fjallar um reynslu sína af því að hafa verið virkur í glæpagengi í dönsku höfuðborginni. Hann var leiðtogi gengisins Los Guerreros, stuðningsgengis Bandidos.DR segir frá því að Yasar hafi verið skotinn þar sem hann var einn á gangi eftir að hafa kynnt bók sína í hverfinu. Lögregla í Kaupmannahöfn hefur ekki viljað staðfesta að það hafi verið Yasar sem hafi verið skotinn, en hefur þó greint frá því að hinn særði sé í lífshættu. Nedim Yasar sagði skilið við Los Guerreros árið 2012 og hefur síðan meðal annars starfað sem þáttastjórnandi Politiradio á útvarpsstöðinni 24/7. Þá hefur hann verið virkur í samfélagsumræðunni um átök glæpagengja í Danmörku. Hann hefur í viðtölum og bók sinni greint frá því að hann óttist um líf sitt eftir að hafa sagt skilið við glæpahópana.
Danmörk Norðurlönd Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira