Markvörður Spánar meiddur eftir að auglýsingaskilti féllu á hann í Köln Tómas Þór Þórðarson í Köln. skrifar 18. janúar 2019 17:19 Iker Romero. liðsstjóri spænska liðsins og fyrrverandi landsliðsmaður, skoðar aðstæður. vísir/tom
Rodrigo Corales, markvörður spænska landsliðsins í handbolta, og annar leikmaður liðsins urðu fyrir því áfalli á æfingu Spánverja í Lanxess-höllinni í Köln í kvöld að auglýsingaskilti féllu á þá. Coralles og samherji hans voru að teygja upp við auglýsingaskiltin öðru megin á vellinum þegar að þessi þunga röð féll niður og á þá báða. Corales fékk skiltið á fótinn og gekk um draghaltur þegar að íslenskir fjölmiðlar fóru inn í sal að fylgjast með æfingu þýska liðsins. Iker Romero, fyrrverandi leikmaður spænska liðsins sem nú starfar sem framkvæmdastjóri þess, var heldur betur ósáttur og var í óða önn að fara yfir málin með mótshöldurum hér í Köln. Eðlilega var hann ósáttur enda er erfitt að ímynda sér að Corales spili á móti Frakklandi á morgun. Romero hætti svo að ræða við mótshaldara og hringdi í einhvern á spænsku er hann stóð rétt hjá íslensku fjölmiðlamönnunum. Honum var heitt í hamsi og væntanlega þarf nú að kalla inn annan markvörð fyrir leikinn á morgun sem er engin óskastaða.Iker Romero horfir illum augum á mótshaldara.vísir/tom
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira