Norðurlandaslagur í úrslitunum eftir að Norðmenn kláruðu Þjóðverja Anton Ingi Leifsson skrifar 25. janúar 2019 20:57 Norðmenn fagna í kvöld. vísir/getty
Norðmenn eru komnir í úrslitaleikinn á HM í handbolta og mæta þeir Dönum en þetta varð ljóst eftir að Norðmenn höfðu betur gegn Þýskalandi í undanúrslitunum í Hamborg í kvöld, 31-25. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfeik þó að Norðmennirnir hafa ávallt verið skrefi á undan. Þjóðverjar voru mikið að láta reka sig útaf en þeir norsku náðu mest þriggja marka forystu í fyrri hálfleik. Þeir leiddu svo í hálfleik með tveimur mörkum, 14-12. Fljótlega í síðari hálfleik voru Norðmennirnir komnir í fjögurra marka forystu og það forskot létu þeir aldrei af hendi. Þrátt fyrir fína spretti þeirra þýsku náðu þeir mest að minnka muninn í eitt mark en nær komust þeir ekki. Lokatölur 31-25. Það verða því Norðurlandaþjóðirnar Danmörk og Noregur sem mætast í úrslitaleiknum um HM gullið í Herning í Danmörku á sunnudagskvöldið en Frakkland og Þýskaland spila um bronsið. Sander Sagosen var frábær í liði Norðmanna. Hann skoraði sex mörk auk þess að gefa tíu stoðsendingar. Magnus Rod var þó markahæstur með sjö mörk en hann meiddist undir lok leiksins og er óvíst með þáttöku hans í úrslitaleiknum. Bjarte Myrhol gerði sex mörk og var valinn maður leiksins. Uwe Gensheimer og Fabian Bohm drógu vagninn í þýska liðinu. Uwe skoraði sjö mörk og Fabian gerði sex. Fabian Weide gerði svo fimm mörk.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira