Leyfir gestum að húðflúra sig á sýningu Björk Eiðsdóttir skrifar 23. febrúar 2019 07:45 Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson á bæði örverk á hátíðinni og nú einnig lítið húðflúrað listaverk á baki Almars. Mynd/Leifur Wilberg Orrason
Almar Steinn Atlason sem er líklega hvað þekktastur sem Almar í kassanum eftir að hafa dvalið nakinn í kassa árið 2015 sýnir ekki síður djörfung í nýjasta verki sínu. Almar er einn þeirra listamanna sem Unnur Elísabet Gunnarsdóttir leitaði til með listahátíð sína Ég býð mig fram, sem nú fer fram í Tjarnarbíói. Um er að ræða 14 örverk sem saman koma í listahátíð sem frumsýnd var á fimmtudaginn. Unnur leitaði á náðir nokkurra eftirlætis listamanna sinna og bað hvern og einn að semja örverk fyrir sýninguna. Segja má að Tjarnarbíó umturnist þá daga sem sýningin fer fram en það er ekki aðeins á sviðinu sem listin er framin, heldur einnig í anddyrinu. Þar getur meðal annars að líta verk Almars, Merking, sem svo sannarlega vakti athygli frumsýningargesta sem sjálfum bauðst að taka þátt, með því að setja varanlegt mark sitt á Almar. Almar situr þar á palli, klæddur svörtum heilgalla sem hylur bæði andlit og líkama, utan lítillar opnunar á baki. Þar gefst gestum með ríka tjáningarþörf kostur á að húðflúra verk á bak Almars.Á stálplötu á palli Almars er að finna leiðbeiningar til húðflúrara um að gæta öryggis og hreinlætis.Mynd/Leifur Wilberg OrrasonAðspurður hvort það að bjóða líkama sinn undir hvers kyns húðflúr hafi verið það fyrsta sem honum datt í hug þegar leitað var til hans svarar Almar: „Þessi hugmynd fæddist í rauninni í spjalli okkar Unnar. Ég varð svo lítill í mér þegar svona frábær listakona bað mig að skrifa eitthvað sem hún gæti sett á svið. Ég fékk hreinlega samviskubit og við ákváðum að nota það í verkið, hvernig ég ætla sífellt að vekja athygli og skilja eitthvað eftir mig í þeim sem ég hitti en svo þegar manni býðst að setja mark sitt varanlega á einhvern verð ég allavega sjálfur bara feiminn, hræddur og líður eins og allt sé mér að kenna frekar en mér að þakka og mig langaði til þess að miðla þeirri tilfinningu beint til sýningargesta.“Flestu fólki treystandi „Við skiptum bakinu á mér í fimm kassa á stærð við A5 og hver þeirra opnast svo eins og jóladagatal á sýningu.“ Nú þegar er búið að skipuleggja fimm sýningar, en hvað ætlar Almar að gera ef þær verða fleiri? „Við tökum þetta bara einn dag í einu,“ svarar hann hugsi. Á stálplötu á palli Almars er að finna leiðbeiningar eða 12 spora kerfi eins og hann kýs að kalla það, sem húðflúrarar eru beðnir að virða til að gæta öryggis og hreinlætis. „Ég er þeirrar skoðunar að fólki sé ekki treystandi fyrr en maður treystir því og þá sé flestum treystandi,“ segir Almar og er sáttur við þau verk sem komin eru til að vera á baki hans. „Það varð meira að segja til eitt samvinnuverkefni í gær, það var einn sem teiknaði hjarta og annar bætti við ör í gegnum það. Ég er bara hrærður yfir því að fólki vilji skilja eitthvað eftir á mér og þannig taka þátt,“ segir Almar sem segir það henta sér vel að vera þátttakandi í sýningunni en sjálfur sjá ekki neitt en andlit hans er algjörlega hulið á meðan á gjörningnum stendur. „Það er ekki annað hægt en að vera spenntur yfir að fá að taka þátt í þessari frábæru sýningu með þessu skemmtilega listafólki.“
Birtist í Fréttablaðinu Húðflúr Tengdar fréttir Twitter fór á hliðina þegar Almar steig út úr kassanum: „Eitt risastökk fyrir mannkynið“ #nakinníkassa tröllreið internetinu í morgun. 7. desember 2015 11:30 Konan hans Almars: „Ég er ógeðslega stolt af honum“ Segir Almar vera algjöra hetju að endast viku í kassanum. 7. desember 2015 09:56 Sjáðu lýsingu Gumma Ben í heild sinni: „Hann er orðinn kassavanur“ Eftir vikudvöl nakinn í glerkassa er Almar Atlason kominn út. 7. desember 2015 09:45 Útsending Vísis úr Listaháskólanum í heild sinni: „Það þarf að útskrifa hann strax“ Eftir vikudvöl nakinn í glerkassa er Almar Atlason kominn út. 7. desember 2015 10:24 Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira
Twitter fór á hliðina þegar Almar steig út úr kassanum: „Eitt risastökk fyrir mannkynið“ #nakinníkassa tröllreið internetinu í morgun. 7. desember 2015 11:30
Konan hans Almars: „Ég er ógeðslega stolt af honum“ Segir Almar vera algjöra hetju að endast viku í kassanum. 7. desember 2015 09:56
Sjáðu lýsingu Gumma Ben í heild sinni: „Hann er orðinn kassavanur“ Eftir vikudvöl nakinn í glerkassa er Almar Atlason kominn út. 7. desember 2015 09:45
Útsending Vísis úr Listaháskólanum í heild sinni: „Það þarf að útskrifa hann strax“ Eftir vikudvöl nakinn í glerkassa er Almar Atlason kominn út. 7. desember 2015 10:24