Ingi Jóhann og Anna í stjórn Loftleiða Cabo Verde Kristinn Ingi Jónsson skrifar 24. apríl 2019 08:00 Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gjögurs
Systkinin Anna og Ingi Jóhann Guðmundsbörn, stærstu eigendur útgerðarfélagsins Gjögurs, hafa tekið sæti í stjórn félags sem keypti fyrr á árinu 51 prósents hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum. Um leið hafa þeir Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Samherja og stjórnarformaður Eimskips, og Steingrímur Halldór Pétursson, fjárfestir og framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Olís, gengið úr stjórn félagsins sem ber heitið Loftleiðir Cabo Verde. Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, leiðir fjárfestahópinn sem tekur þátt, ásamt Loftleiðum Icelandic, dótturfélagi flugfélagsins, í kaupunum. Björgólfur þekkir vel til systkinanna en hann situr í stjórn Gjögurs með Önnu og þá eru þeir Ingi Jóhann jafnframt stjórnarmenn í Sjóvá. Stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum samþykktu í lok febrúar kauptilboð Loftleiða Cabo Verde sem hljóðaði upp á jafnvirði 175 milljóna króna en til viðbótar hyggst félagið leggja ríkisflugfélaginu til um 730 milljónir. Loftleiðir Icelandic fara með 70 prósenta hlut í Loftleiðum Cabo Verde og fjárfestahópurinn 30 prósenta hlut. - kij Auk Önnu og Inga Jóhanns, sem er stjórnarformaður Loftleiða Cabo Verde, situr Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, sem fyrr í stjórn eignarhaldsfélagsins. Systkinin eru ásamt Björgólfi á meðal eigenda Kjálkaness, systurfélags Gjögurs, sem fer meðal annars með 34 prósenta hlut í Síldarvinnslunni og 10 prósenta hlut í Íslenskum verðbréfum.
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Grænhöfðaeyjar Mest lesið Finna meira gull á Grænlandi Viðskipti innlent Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Viðskipti innlent Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Viðskipti innlent Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Viðskipti innlent Jónas Már til Réttar Viðskipti innlent Umfangsmiklar uppsagnir hjá Amazon Viðskipti erlent „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Viðskipti innlent Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Viðskipti innlent Hætt við að vextir hækki Viðskipti innlent „Það verða fjöldagjaldþrot“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Finna meira gull á Grænlandi Jónas Már til Réttar „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Hætt við að vextir hækki „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Ráðin framkvæmdastjóri Sólar ehf. Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Síldarvinnslan birtir jákvæða afkomuviðvörun „Það verða fjöldagjaldþrot“ Veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Öll lónin full og vatnsbúskapur tók stökkbreytingum Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Landsbankinn breytir framboði á lánum eftir vaxtadóminn Ljóst að kaupverð á íbúðum í Vesturbugt verði í hærri kantinum „Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Landsbankinn hagnast um tæpa 30 milljarða á níu mánuðum Síminn kaupir Motus og Pei Sjóvá hagnast um 666 milljónir það sem af er ári Húsleit hjá Terra Sjá meira