Messi komst upp með að færa boltann á mun betri stað í aukaspyrnunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2019 09:00 Lionel Messi fagnar marki í gær. Getty/Matthias Hangst
Lionel Messi skoraði magnað mark í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hann innsiglaði 3-0 sigur Barcelona á Liverpool í fyrri undanúrslitaleik liðanna. Markið skoraði Messi með frábærri aukaspyrnu af 32 metra færi og argentínski snillingurinn sýndi þar enn á ný hversu stórbrotinn knattspyrnumaður hann er. Hann hafði skömmu áður komið Barcelona í 2-0 og með þessum tveimur mörkum á lokakafla leiksins tryggði hann nánast Barcelona sæti í úrslitaleiknum. Messi hafði einnig fiskað aukaspyrnuna sjálfur en ástralski blaðamaðurinn Adam Peacock benti á að aukaspyrnan var tekin á kolröngum stað.This will make Liverpool feel even better. Messi. Master free kick taker. And mover. pic.twitter.com/KqALtVhbN6 — Adam Peacock (@adampeacock3) May 2, 2019Messi fékk aukaspyrnuna eftir að Fabinho hljóp fyrir hann og eins og sjá má á myndunum hér fyrir ofan þá var brotið mun lengra frá markinu en þar sem Lionel Messi tók á endanum spyrnuna. Messi færði boltann ekki aðeins nær markinu heldur einnig meira fyrir miðju. Messi nýtti sér það að leikmenn umkringdu hollenska dómarann Bjorn Kuipers eftir brotið. Luis Suarez fékk meðal annars gult spjald fyrir mótmæli. Messi er frábær spyrnumaður og hefur skorað ófá glæsimörkin beint úr aukaspyrnu. Það breytir samt ekki því að hann auðveldaði sér verkefnið talsvert með því að færa boltann. Spyrnan var síðan fullkomin og óverjandi fyrir Alisson í marki Liverpool. Hér fyrir neðan má sjá mörk Barcelona í leiknum.Klippa: Barcelona - Liverpool 3-0
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Sjá meira