"Ég er heimsmeistari í undanúrslitaleikjum“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. júní 2019 10:00 Jurgen Klopp hefur ekki áhyggjur af slæmu gengi í úrslitaleikjum vísir/Getty
Jurgen Klopp segir það ekki vera sér að kenna að hann hafi tapað síðustu sex úrslitaleikjum sem lið hans hafa tekið þátt í. Klopp hefur enn ekki náð að vinna titil með Liverpool og þá tapaði hann nokkrum úrslitaleikjum með Borussia Dortmund. Síðasti úrslitaleikur sem tapaðist var úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fyrir ári síðan þegar Liverpool tapaði fyrir Real Madrid. Í kvöld mætir Liverpool Tottenham í úrslitaleiknum í Madríd. „Ef ég væri ástæðan fyrir því að sex síðustu úrslitaleikir hafi tapast þá þyrftu allir að hafa áhyggjur. En ef það er ekki ástæðan þá eigum við alltaf möguleika og þannig lítum við á þetta,“ sagði Klopp á síðasta blaðamannafundi sínum fyrir úrslitaleikinn. „Síðan árið 2012, fyrir utan 2017, þá hef ég komið liði í úrslitaleik. Stundum komumst við þangað á heppni, en oftast af því að við þurftum að fara þangað, svo eins og er er ég líklega með heimsmetið í að vinna undanúrslitaleiki.“ „Ég er mannlegur svo ef að ég sæti og hugsaði að þetta væri allt mér að kenna, þá værum við í vanda. En ég sé þetta ekki svona.“ Liverpool fer inn í þennan úrslitaleik sem sigurstranglegra liðið, en Tottenham hefur aldrei spilað úrslitaleik Meistaradeildarinnar áður. Leikurinn í kvöld verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst upphitun klukkan 18:15. Þá verður hægt að sjá leikinn í ofurháskerpu á Stöð 2 Sport UHD.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Sjá meira