Komst ekki í liðið hjá West Brom en var valinn leikmaður ársins hjá Bayern München Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2019 12:30 Gnabry varð tvöfaldur meistari með Bayern München í vor. vísir/getty
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þýski kantmaðurinn Serge Gnabry komst ekki í liðið hjá West Brom fyrir nokkrum árum. Hann varð tvöfaldur meistari með Bayern München í vor og var svo valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Arsenal lánaði Gnabry til West Brom fyrir tímabilið 2015-16. Hann spilaði hins vegar þrjá leiki með West Brom og sneri aftur til Arsenal um mitt tímabil. Síðan þá hefur leiðin legið upp á við hjá Gnabry. Hann átti gott tímabil með Werder Bremen og Bayern keypti hann sumarið 2017. Gnabry var lánaður til Hoffenheim tímabilið 2017-18 þar sem hann skoraði tíu mörk og átti stóran þátt í því að liðið endaði í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu. Í vetur skoraði hann 13 mörk í 42 leikjum fyrir Bayern í öllum keppnum. Liðið vann bæði deild og bikar. Héctor Bellerín, leikmaður Arsenal, hrósaði sínum gamla samherja á Twitter í dag og skaut í leiðinni á West Brom og Tony Pulis, þáverandi knattspyrnustjóra liðsins.Not good enough to play for West Brom thoughCongrats my bro I always knew you were the best@SergeGnabryhttps://t.co/dTYrcPjRay — Héctor Bellerín (@HectorBellerin) June 22, 2019
Þýski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira