„Allir sem við töluðum við þarna úti ræddu um þennan niðurskurð á laugardagsmorgninum. Ég er 100 prósent á því að það voru ekki tíu bestu keppendurnir eftir þegar var búið að skera niður. CrossFit á að vera fjölbreytt þar sem reynt er á bæði þol og styrk og þátttakendur voru ekki búnir að reyna sig í lyftingum. Það var ekki búið að reyna á alla þættina þegar skorið var niður. Persónulega held ég að þetta hafi verið mistök hjá framkvæmdaraðilum að skera niður svona snemma.

Aldrei hafa fleiri nýliðar tekið þátt í CrossFit-leikunum og segir Evert að leikarnir og CrossFit-heimurinn eigi bara eftir að stækka, sem eru kannski ekkert endilega góðar fréttir fyrir litla Ísland. „Ég get bara talað um mína stöð, CrossFitReykjavík, en við erum stöðugt vaxandi. Það kemur mér skemmtilega á óvart hvað það er stöðugur vöxtur. Ég held að það sé svoleiðis um allan heim, svona miðað við samtölin sem ég átti úti. Ísland fellur fyrir CrossFit mjög snemma og við vorum ein af fyrstu 50-100 stöðvunum í heiminum. Nú eru þær orðnar um 15 þúsund. Við vorum fljót af stað og stórar þjóðir eru að átta sig á þessu, eins og Þjóðverjar. Þetta er að byrja þar. Stóru þjóðirnar koma með fleiri keppendur, eins og Rússar, Kínverjar og aðrar sterkar Austur-Evrópuþjóðir og þá á litla Ísland minni möguleika. Kannski er það framtíðin.
En ég held að við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur. Katrín er enn ung að árum og á nóg eftir. Sara á nóg eftir og þó að þær hafi ekki verið á palli núna, þá var Katrín í fjórða sæti og rétt missti af bronsinu. Þær munu koma sterkari til baka. Sara á eftir að vinna, hún er líklega besti CrossFittari sem hefur ekki unnið leikana. Hún hefur aldrei verið í betra formi, líkamlega og andlega, en fyrir þessa leika.
Annie hefur aldrei verið í betra formi. Hún byrjaði hrikalega vel og var í öðru sæti eftir fyrsta dag. En keppnin var skemmtileg og við vorum með fullt af fólki sem stóð sig ótrúlega vel,“ segir Evert.

Það eru svo sannarlega orð að sönnu því fyrir utan kvennaflokkinn, sem nýtur mestra vinsælda hér á landi, kom Björgvin Karl Guðmundsson heim með brons í karlaflokknum. Það gerði Sigurður Þrastarson einnig, í flokki 35-39 ára, sem og Brynjar Ari Magnússon, í unglingaflokki.
„Björgvin var stórkostlegur. Maður sá eldinn í augunum á honum á lokadeginum þegar hann byrjaði að éta upp forskotið. Hann var geggjaður.
Hann er að stimpla sig inn sem goðsögn í þessum heimi. Árangurinn er þannig. Hann á nóg eftir á tankinum.
Sigurður og Stefán Helgi enda báðir á topp 10 í 35-39 ára flokknum sem er frábært því það voru yfir 17 þúsund manns sem hófu leik. Hilmar Harðarson, sem keppti í 60+, var fremstur að degi þrjú og hann endar í 5. sæti sem er frábært.“
Það kom fáum á óvart að Mathew Fraser og Tia-Clair Toomey skyldu vinna sína fjórðu leika en þau virðast vera nánast ósnertanleg á toppnum. „Fraser þurfti að hafa fyrir þessum titli sem hann hefur ekki þurft að gera síðustu tvö ár. Þá var hann búinn að vinna titilinn fyrir lokagreinina. Núna var hann síðasta daginn að gefa allt sitt.

Evert bendir á að unglingastarfið hér á landi sé frábært og það séu að koma upp krakkar sem geti gert ótrúlega hluti. „Það eru nokkur nöfn að banka á dyrnar. Við eigum alltaf nokkur ár á þessar stóru þjóðir og það er ekkert að fara að gerast í nánustu framtíð að stórar þjóðir fari að ýta okkur í burtu.
Þessir krakkar sem eru að koma upp hafa ekki verið í neinum öðrum íþróttum. Þau stunda bara CrossFit. Það er að koma upp kynslóð af krökkum sem eru búnir að æfa CrossFit í 7-9 ár og gæðin eru svakaleg. Þessir krakkar munu ná langt – maður sér það.“
