Ítreka að ástand allra ökumanna sem aka frá Landeyjahöfn í dag verður kannað Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. ágúst 2019 10:34 Bílastæðið við Landeyjahöfn. Vísir/Jóhann K.
Lögreglan á Suðurlandi mun kanna ástand allra ökumanna sem koma akandi frá Landeyjahöfn í dag. Sjö ökumenn á leið frá höfninni hafa verið kærðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna frá því klukkan þrjú í nótt. „Í ljósi þess að frá því klukkan 03:00 í nótt hafa 7 ökumenn, komandi frá Landeyjahöfn, verið kærðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna, telur lögregla rétt að ítreka að allir ökumenn sem koma akandi frá Landeyjahöfn eru stöðvaðir og kannað með ölvunar- og vímuástand þeirra,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi á Facebook. Búast má við að margir muni leggja leið sína um Landeyjahöfn í dag á leið frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Bendir lögregla á að lögreglumenn verði staðsettir í Landeyjahöfn þar sem fólki gefst kostur á að blása í áfengismæla til að kanna með ölvunarástand sitt áður en haldið er af stað. Lögreglan á Suðurlandi hefur verið með virkt eftirlit um verslunarmannahelgina og voru settar upp eftirlitsstöðvar víðsvegar um embættið þar sem kannað var með ástand og réttindi ökumanna. Mikil umferð hefur verið um svæðið og áætla lögreglumenn að ástand og réttindi um tvö þúsund ökumanna hafi verið kannað síðastliðinn sólarhring.
Landeyjahöfn Lögreglumál Samgöngur Umferðaröryggi Þjóðhátíð í Eyjum Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira