Áður úthrópaður vitleysingur en er nú dýrkaður og dáður Benedikt Bóas skrifar 12. ágúst 2019 14:30 Sterling með enska bikarinn í Brighton í maí. Þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára hefur hann látið til sín taka utan vallar og þykir einstakt ljúfmenni með munninn fyrir neðan nefið. vísir/getty
Raheem Sterling, leikmaður Manchester City, skoraði þrennu gegn West Ham, þegar meistararnir niðurlægðu Lundúnaliðið 5:0 í fyrstu umferð enska boltans. Sterling skoraði reyndar fleiri, en eitt mark var tekið af honum vegna rangstöðu. Sterling varð áttundi leikmaðurinn til að skora þrennu á opnunarhelgi enska boltans. Didier Drogba var sá síðasti til að gera það fyrir Chelsea árið 2010. Sterling er orðinn ein stærsta stjarna enska boltans. Ekki aðeins innan vallar heldur einnig fyrir utan völlinn. Þannig hefur það ekki alltaf verið því ensku blöðin hafa af einhverjum ástæðum alltaf haft horn í síðu hans. Sterling var keyptur á um 50 milljónir punda eftir að hafa verið frábær fyrir Liverpool. Hann strögglaði til að byrja með og blöðin voru dugleg að skjóta á hann og kölluðu hann reglulega flopp. Sterling skoraði 11 mörk í 47 leikjum á sínu fyrsta tímabili fyrir City og á fyrsta tímabili Guardiola urðu þau 10. Fjölmiðlar fóru að fylgjast með þessum vandræðagemsa og gerðu fyrirsagnir úr öllu og engu. Meðal annars var hann sagður eiga skítugan bíl, borða á Greggs-veitingastaðnum, versla í Primark og fljúga með EasyJet. Þá var hann sagður vera ansi mikið upp á kvenhöndina og að lifa ljúfa lífinu með áfengi við hönd. The Sun kallaði hann fótboltafávita á forsíðu og honum var kennt um nánast allt sem miður fór hjá enska landsliðinu. Einu sinni fór hann meira að segja í partí sem ensku blöðin gerðu sér mat úr. Hugsa sér. Ungur maður vogaði sér að fara í partí. Sterling svaraði þó aldrei fyrir sig og lét verkin tala inni á vellinum. Tímabilið 2017-2018 skoraði hann 23 mörk og England á leið á HM í Rússlandi. Allt virtist í blóma en þá fékk Sterling sér húðflúr sem gerði allt vitlaust. Prentvélar voru stöðvaðar og ensku sjónvarpsstöðvarnar fóru í beina útsendingu yfir flúrinu sem var af M-16 byssu. Sterling útskýrði að byssan hefði örlítið dýpri merkingu en svo að hann elskaði byssur. Í færslu á Instagram sagði hann að byssan væri til að minna sig á heit sem hann strengdi þegar faðir hans var skotinn til bana. Hann lofað sjálfum sér að snerta aldrei byssu – en nota þess í stað hægri fótinn til að skjóta boltanum. Það er nú ekki hægt að segja að allir hafi tekið hann eitthvað sérstaklega í sátt, þó að blöðin hafi aðeins róast. Fólkið tók núna við og Twitter logaði löngum stundum á HM um Sterling þar sem hann fékk að heyra það frá reiðum stuðningsmönnum og rasistum. Þrátt fyrir að England hafi náð fínum árangri var Sterling kennt um allt sem miður fór. Gareth Southgate var hetja mótsins en Sterling var skúrkurinn. Svo kom desember og City var að tapa fyrir Chelsea á Stamford Bridge í leik sem var í beinni útsendingu. Sterling skokkaði til að taka horn og nokkrir heilalausir stuðningsmenn Chelsea öskruðu til hans augljós rasísk ókvæðisorð. Þá fékk hann nóg og tók til sinna ráða. Hann notaði Instagram til að segja sína skoðun og benti á að það væru fjölmiðlar sem væru að kynda undir rasismanum á vellinum. Tók hann dæmi um Phil Foden og Tosin Adarabioyo sem báðir keyptu hús fyrir mæður sínar og hvernig fjölmiðlar sögðu frá þeim húsakaupum. Rasismi hefur verið mikið vandamál á Englandi að undanförnu og sem dæmi er lögreglan þar í landi með enn eitt málið til rannsóknar eftir leiki helgarinnar þar sem kynþáttaníð kom við sögu. Sterling varð glaður andlit herferðar gegn heimskum stuðningsmönnum og tónninn gegn honum hefur gjörbreyst á nokkrum mánuðum. Nike fékk hann með sér í lið í auglýsingaherferð sem fékk mikið lof og eftir tímabilið var hann valinn leikmaður ársins af blaðamönnum, eitthvað sem var nánast óhugsandi nokkrum mánuðum fyrr. Fjölmiðlar fóru að taka eftir góðvild hans utan vallar. Kannski höfðu þeir alltaf tekið eftir því en aldrei viljað greina frá því. Hann bauð börnum sem ganga í gamla skólann hans á bikarúrslitaleikinn gegn Watford, ekki bara 10 eða 100 heldur öllum 550. Starfsfólki líka. Hitti þau á æfingasvæðinu og sá um allt. Hann fordæmdi Leonardo Bonucci, leikmann Juventus, fyrir heimskuleg rasistaummæli, skrifaði ungum dreng sem hafði orðið fyrir kynþáttafordómum bréf, bauð öðrum til sín í Manchester, sendi Mason Greenwood, leikmanni grannanna í Manchester United skilaboð þar sem hann óskaði honum til hamingju með fyrsta leikinn sinn í úrvalsdeildinni, aðstoðaði við að finna líffæragjafa fyrir ungan dreng sem var með hvítblæði og reyndar lést skömmu síðar. Sterling greiddi fyrir útför hans og lyfti upp landsliðstreyjunni sinni þar sem hann minntist drengsins. Svona mætti lengi telja. Báðir þjálfarar hans, Guardiola og Southgate, hafa stigið fram og sagt hversu góð manneskja hann sé og fyrirmynd. Southgate gerði hann að fyrirliða Englands í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar og leikmenn víða um Evrópu hafa einnig hrósað honum fyrir að stíga fram. Þannig neitaði Tyrone Mings að mæta í viðtal hjá TalkSport vegna þess að einn umsjónarmannanna lét heimskuleg ummæli út úr sér um Sterling. Í apríl var hann valinn íþróttamaður ársins á BEDSA, British Ethnic Diversity Sports Awards, verðlaun sem eru veitt þeim einstaklingi sem hefur haft hvað mest áhrif á minnihlutahópa. Sterling var frábær inni á vellinum gegn West Ham í fyrsta leik leiktíðarinnar og hver veit nema þetta sé aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal. Það er allavega ljóst að Sterling verður í fréttum í vetur, bæði innan vallar og utan.
Birtist í Fréttablaðinu Bretland England Enski boltinn Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Gleði og sorg í sigri Liverpool Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Sjá meira