Newcastle komið á blað eftir sigur á Tottenham Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2019 17:30 Joelinton fagnar eftir að hafa skorað eina mark leiksins gegn Tottenham. vísir/getty Newcastle United gerði góða ferð til Lundúna og vann 0-1 sigur á Tottenham í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Þetta var fyrsti sigur Newcastle á tímabilinu og sá fyrsti undir stjórn Steves Bruce í keppnisleik. Joelinton, dýrasti leikmaður í sögu Newcastle, skoraði eina mark leiksins á 27. mínútu. Brassinn fékk þá boltann inn fyrir galopna vörn Tottenham frá varamanninum Christian Atsu og skoraði framhjá Hugo Lloris. Þetta var fyrsta mark Joelintons fyrir Newcastle. Heimamenn voru miklu meira með boltann en varnarleikur gestanna var sterkur. Tottenham vildi fá vítaspyrnu á 78. mínútu en ekkert var dæmt eftir að atvikið var skoðað á myndbandi. Spurs er í 7. sæti deildarinnar með fjögur stig. Newcastle er í nítjánda og næstneðsta sætinu með þrjú stig. Enski boltinn