Læstist inni í flugvél sem var lögð af stað Tinni Sveinsson skrifar 22. ágúst 2019 12:00 Tanja Rós Viktoríudóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019
Miss Universe Iceland 2019 fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 31. ágúst og verður keppnin í beinni útsendingu hér á Vísi. Alþjóðleg dómnefnd velur þar fulltrúa Íslands sem tekur síðan þátt í Miss Universe. Tanja Rós Viktoríudóttir er meðal þátttakenda. Tanja er fædd í Úkraínu en flutti 13 ára til Íslands. Heilbrigt líferni er Tönju mikilvægt. Eftir að hafa sigrast á búlimíu hefur Tanja unnið sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og hjá BUGL og stutt ungar konur í sömu sporum. Lífið yfirheyrði Tönju.Morgunmaturinn? Það sem ég finn í ísskápnum heima hjá mér.Helsta freistingin? Súkkulaði og nutella.Hvað ertu að hlusta á? Tónlist.Tanja er orkumikil og leiðist að sitja heima og gera ekki neitt.Hvaða bók er á náttborðinu? The Land of Laughs eftir Jonathan Carroll.Hver er þín fyrirmynd? Langamma mín sem var besta og jákvæðasta manneskja í heimi. Hún verður alltaf fyrirmyndin mín af því að hún kenndi mér mikilvæga hluti í lífinu eins og að vera alltaf góð við aðra og sjálfa mig, að hugsa jákvætt, aldrei gefast upp á draumum, að kunna fyrirgefa fólki mistök þó það geti verið stundum erfitt og aldrei að fordæma fólk, því að við vitum aldrei hvað aðrir hafa gengið í gegnum og hvernig lífssagan þeirra er!Hvað ætlarðu að gera í sumar? Fara til útlanda, ferðast og njóta sumarsins á Íslandi, undirbúa mig fyrir keppnina og æfa í Reebok. Svo byrja ég í Háskólanum í Reykjavík í viðskiptafræði og tek þátt í maraþonhlaupinu. Ég ætla að hlaupa fyrir BUGL barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Heilsan er það mikilvægasta sem við höfum, sérstaklega fyrir ungt fólk og framtíðina þeirra! Þess vegna mér finnst mjög mikilvægt að öll börn og unglingar fái hjálp ef þau þurfa og fullorðnir þurfi að vera meira vakandi fyrir hlutum eins og einelti í grunnskólum og átröskun ungs fólks. Við hlustum kannski á vandamál barna en við heyrum ekki hvað vandamálið snýst um.Uppáhaldsmatur? Allt nema lakkrís.Uppáhaldsdrykkur? Latte með karamellusírópi.Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt? Christy Nicole Turlington Burns.Hvað hræðistu mest? Köngulær og slöngur.Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í?Ég var að vinna á Keflavíkurflugvelli í farþegaþjónustu og fór eitt sinn inn í vél að leita að farþega. Það gleymdist að ég væri inni í vélinni og flugfreyja læsti hurðinni. Ég var föst inni og flugvélin lagði af stað en sem betur fer náði ég að stoppa þetta og komst út áður en vélin var farin upp í loft. Hverju ertu stoltust af? Ég er stolt af því að vera góð fyrirmynd fyrir aðra og af því að ég gefst aldrei upp á mínum draumum! Ég er mjög sterk manneskja og þegar ég set mér markmið þá stoppa ég aldrei fyrr en ég næ þeim!Hefurðu einhvern leyndan hæfileika? Ég myndi ekki kalla það hæfileika en ég kann að teikna og get alveg saumað kjól ef ég nenni.Hundar eða kettir? Bæði, ég á einn hund og tvær kisur. Ég elska öll gæludýr.Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að gera ekki neitt. Ég er orkumikil manneskja og mér leiðist mjög mikið að sitja heima og gera ekki neitt.En það skemmtilegasta? Ég elska að ferðast og að kynnast nýju fólki og menningu í öðrum löndum. Það er það skemmtilegasta og besta sem ég geri.Hverju vonastu til að Miss Universe skili þér? Að ég eignist nýjar vinkonur og að eigi skemmtilegt sumar með stelpunum. Að taka þátt í MUI er upplifun sem mig langar að endurtaka aftur og aftur. Mér finnst MIU gott tækifæri til þess að koma skoðunum mínum á framfæri og reynslu. Það er gott að komast út fyrir þægindarammann. Þú þarft ekki að vera hræddur við að prófa eitthvað nýtt og alls ekki láta skoðanir annarra stoppa þig.Hvar sérðu þig eftir 5 ár? Ég mun klára nám í HR og eignast mína eigin fjölskyldu. Ég ætla annað hvort að fara í flugnám eftir HR eða stofna fyrirtæki. Kannski mun ég flytja til útlanda með kærastanum mínum og byggja upp framtíð okkar þar.Lífið kynnir á næstu dögum keppendur til leiks í Miss Universe Iceland 2019. Keppnin fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 31. ágúst og verður í beinni útsendingu hér á Vísi. Alþjóðleg dómnefnd velur þar fulltrúa Íslands sem tekur síðan þátt í Miss Universe. Hér fyrir neðan má taka þátt í kosningunni Val fólksins.
Miss Universe Iceland Tengdar fréttir Vill breyta óraunhæfum kröfum um útlit kvenna Kristrún Hrafnsdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Hún er sveitastúlka úr Eyjafirði, spilar tölvuleiki í frístundum, teiknar og horfir á teiknimyndir. 20. ágúst 2019 20:00 Stoppuð fyrir of hægan akstur Sara Djeddou Baldursdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Sara er alin upp í Mosfellsbæ og Bandaríkjunum. Hún vinnur með einhverfum börnum og stefnir á nám í hagfræði. 21. ágúst 2019 12:30 Geri það sem ég vil, þegar ég vil Karín Mist Kjerúlf tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Karín ólst upp á Fáskrúðsfirði og stundar laganám við HÍ. 19. ágúst 2019 20:00 Finnst skemmtilegast að ferðast Tinna María Björgvinsdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Hún stundar nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur áhuga á ballett, dýrum, ferðalögum. 21. ágúst 2019 20:00 Mest lesið Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Lífið Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Lífið Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Tónlist Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ Lífið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Lífið Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Lífið „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Fleiri fréttir Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ „Lendir auðvitað í því að vera alltaf málaður upp sem voðalega vondur“ Siggi Ingvars og Alma Finnboga fjölga sér Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Hræðilegra að syngja með Bítinu en að fara í fallhlífastökk Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Selfyssingar unnu Skjálftann með verki um hinsegin bakslag Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu A-teens og tveir fyrrverandi sigurvegarar taka þátt í Melodifestivalen Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Bílakarókí með Bítinu: „Rændirðu henni?“ „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Kim mældist með „litla heilavirkni“ Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Fela einhverfu til að passa inn MTV hættir að sýna tónlistarmyndbönd allan sólarhringinn Sjá meira
Vill breyta óraunhæfum kröfum um útlit kvenna Kristrún Hrafnsdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Hún er sveitastúlka úr Eyjafirði, spilar tölvuleiki í frístundum, teiknar og horfir á teiknimyndir. 20. ágúst 2019 20:00
Stoppuð fyrir of hægan akstur Sara Djeddou Baldursdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Sara er alin upp í Mosfellsbæ og Bandaríkjunum. Hún vinnur með einhverfum börnum og stefnir á nám í hagfræði. 21. ágúst 2019 12:30
Geri það sem ég vil, þegar ég vil Karín Mist Kjerúlf tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Karín ólst upp á Fáskrúðsfirði og stundar laganám við HÍ. 19. ágúst 2019 20:00
Finnst skemmtilegast að ferðast Tinna María Björgvinsdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland 2019. Hún stundar nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur áhuga á ballett, dýrum, ferðalögum. 21. ágúst 2019 20:00
Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið
Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið