Ágúst Elí og Björgvin Páll í stuði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2019 19:54 Ágúst Elí og félagar fara vel af stað í Meistaradeild Evrópu. vísir/ernir
Ágúst Elí Björgvinsson varði ellefu skot þegar Sävehof vann Sporting, 29-24, í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sænsku meistararnir hafa unnið alla þrjá leiki sína í riðlinum. Ágúst Elí stóð allan tímann milli stanganna hjá Sävehof og varði 31% þeirra skota sem hann fékk á sig. Hann varði tvö af þeim þremur vítaköstum sem hann fékk á sig. Björgvin Páll Gústavsson átti frábæra innkomu hjá Skjern gegn Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni. Björgvin kom inn á um miðjan seinni hálfleik, þegar Skjern var sex mörkum undir, og varði átta af þeim 13 skotum sem hann fékk á sig (62%). Það dugði þó ekki til sigurs því Skjern tapaði, 28-25. Elvar Örn Jónsson lék ekki með Skjern í kvöld. Patrekur Jóhannesson er þjálfari Skjern sem er í 6. sæti deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki. Strákarnir hans Kristjáns Andréssonar í Rhein-Neckar Löwen töpuðu með fimm marka mun fyrir Melsungen, 31-26, í þýsku úrvalsdeildinni. Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Löwen sem er í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Hannover-Burgdorf sem vann meistara síðustu tveggja ára, Flensburg, í kvöld, 23-22. Leipzig hafði betur gegn Bergischer í Íslendingaslag, 35-32. Viggó Kristjánsson var ekki á meðal markaskorara hjá Leipzig sem er í 3. sæti deildarinnar. Bergischer er í því tólfta. Arnór Þór Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson komst ekki á blað. Þá steinlá Kristianstad fyrir Malmö, 20-30, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni. Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad en þurfti til þess níu skot. Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark. Þetta var fyrsta tap Kristianstad á tímabilinu en liðið vann fyrstu fjóra leiki sína í sænsku deildinni.
Danski handboltinn Handbolti Sænski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira