Þættirnir tveir lofa góðu enda ljúfsár og meinfyndin lýsing á annars alvarlegu málefni sem fjölmargir þekkja; framhjáhaldi, skilnaði og öllu sem slíku fylgir.
Nanna Kristín Magnúsdóttir er ekki aðeins handritshöfundur þáttanna og einn framleiðenda heldur leikur hún jafnframt aðalhlutverkið og gerir sjálfri sér sem leikkonu ekkert sérlega auðvelt fyrir en senur hennar eru nærgöngular og oft á tíðum örlítið óþægilegar.
Sagan á sér stað í íslenskum raunveruleika og ekki er dregin upp nein glansmynd af skilnaði, aðdraganda hans né eftirleik en kómískar hliðar ástandsins eru þó aldrei langt undan.
Þegar Nanna fylgdi þáttunum úr hlaði sagðist hún vilja spegla samfélagið á einhvern hátt og velta upp spurningum. Henni tekst það svo sannarlega og sjálfsagt geta ansi margir tengt við söguna hvort sem þeir hafa skilið, eru að fara að skilja eða þekkja einhvern sem hefur skilið. bjork@birtingur.is



