Langt síðan breiddin var jafn mikil Hjörvar Ólafsson skrifar 29. nóvember 2019 09:00 Aron Pálmarsson er lykilleikmaður í uppbyggingu íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem stefnir að því að komast í hóp bestu þjóða heims á nýjan leik innan tíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, gæti fengið töluverðan höfuðverk þegar kemur að því að velja leikmannahópinn fyrir Evrópumótið sem fram fer í janúar á næsta ári. Hópurinn sem kemur til greina í liðið hefur stækkað jafnt og þétt síðustu mánuðina og Guðmundur þarf að skilja sterka leikmenn eftir heima. Fréttablaðið fékk Óskar Bjarna Óskarsson, aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla og yfirþjálfara yngri flokka hjá Val, til þess að fara yfir stöðuna hjá landsliðinu og rýna í valið sem fram undan er. Óskar Bjarni segir útlitið gott í aðdraganda mótsins en öflugir leikmenn séu hins vegar að glíma við meiðsli og erfitt að meta hvort þeir verða með. „Það er langt síðan við höfum haft jafn mikla breidd í landsliðinu og við búum yfir þessa stundina. Þau kynslóðaskipti, sem nauðsynlegt var að fara í í kjölfar þess að liðið sem náði góðum árangri á Ólympíuleikunum árið 2008 og Evrópumótinu 2010 var farið að eldast, eru að ganga í gegn þessa stundina. Við náðum að brúa bilið vel að mínu mati og erum núna með í höndunum leikmannahóp sem er með marga leikmenn í hæsta gæðaflokki og á breiðu aldursbili. Ég held að markviss vinna hjá yngri landsliðunum sem og mikil rækt við B-landsliðið undanfarin ár eigi stóran þátt í því,“ segir Óskar Bjarni um landslagið. „Þá erum við vel settir hvað það varðar að við erum með leikmenn á besta aldri í öllum stöðum og önnur kynslóðaskipti eins og við höfum verið að ganga í gegnum ekki í sjónmáli. Þess í stað getum við farið að horfa til þess að koma okkur aftur í hóp átta bestu liða heims innan fárra ára. Það er erfitt að setja einhvern tímapunkt á það hvenær það gerist en ég myndi segja að eftir svona tvö ár verðum við komnir á þann stall á nýjan leik. Aron Pálmarsson er svo líklega að spila sinn besta handbolta á ferlinum. Það er gaman að sjá hann vaxa í hlutverki reynslumikils leikmanns í liðinu sem miðlar til yngri leikmanna og nær einkar vel til þeirra inni á vellinum,“ segir hann enn fremur.Vantar öfluga og hávaxna skyttu „Við erum með ungan markmann, Viktor Gísla [Hallgrímsson], sem hefur öðlast alþjóðlega reynslu með GOG og hefur grætt mikið á að vera að spila í Meistaradeild Evrópu. Sigvaldi Björn [Guðjónsson] hefur vaxið mikið með Elverum og er að taka stökkið með Hauki Þrastarsyni og fara til Kielce. Það verður gaman að sjá þróun mála hjá þeim en þeir eru í góðum höndum hjá Talant Dujshebaev sem er einn fremsti þjálfari heims. Janus Daði [Smárason] er að spila frábærlega með Álaborg og bankar hressilega á dyrnar í miðjusveit liðsins, sérstaklega í ljósi meiðsla Gísla Þorgeirs [Kristjánssonar]. Bjarki Már [Elísson] hefur verið að spila vel með Lemgo og Arnór Þór [Gunnarsson] heldur uppteknum hætti með Bergischer,“ segir þessi reynslubolti. „Þó svo að við eigum marga leikmenn í hæsta gæðaflokki þá er kannski mesta syndin hversu margir þeirra eru miðjumenn. Það væri óskandi að þessir hæfileikar hefðu dreifst betur yfir útilínuna. Það er áhyggjuefni að Ómar Ingi [Magnússon] hefur ekki náð að jafna sig af höfuðmeiðslunum sem hafa verið að plaga hann. Viggó [Kristjánsson] sló reyndar aðeins á þær áhyggjur með góðri frammistöðu í leikjunum gegn Svíum um daginn. Svo finnst mér vanta svolítið hávaxna skyttu með mikla skotógn en Kristján Örn [Kristjánsson] gæti alveg orðið sá leikmaður hjá okkur,“ segir Óskar. „Við erum með þrjá öfluga varnarmenn, þá Ólaf Gústafsson, Arnar Frey [Arnarsson] og Daníel Þór [Ingason] sem eru að glíma við meiðsli. Í ljósi þess var gott að sjá hversu miklum framförum Sveinn [Jóhannesson] hefur tekið á tíma sínum hjá Sönderjyske. Hann myndaði gott teymi með Ými Erni [Gíslasyni] í þristunum og þeir lofuðu góðu í leikjunum við Svía. Hvað línustöðuna varðar þá stóð Kári Kristján [Kristjánsson] sig vel gegn Svíþjóð. Hann minnti hressilega á sig þar og getur verið gott vopn sóknarlega í vissum leikjum á Evrópumótinu,“ segir hann. „Við erum með öflug yngri landslið sem stóðu sig vel á þeim mótum sem þau spiluðu á í sumar. Við náðum meira að segja að breikka hópinn í 20 ára landsliðinu sökum fjarveru lykilleikmanna þar og 2000 og 2002 árgangarnir stóðu sig vel. Mér finnst við þurfa að bæta við verkefnum hjá U-15 ára hópnum okkar og sjá til þess að B-landsliðið fari að minnsta kosti á eitt mót á hverju ári,“ segir hann um framtíðina.
Birtist í Fréttablaðinu EM 2020 í handbolta Mest lesið Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Fótbolti Fleiri fréttir Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Sjá meira