Ótrúleg tölfræði hjá Lewandowski Hjörvar Ólafsson skrifar 28. nóvember 2019 13:30 Pólverjinn Robert Lewandowski fagnar fjórða markinu sem hann gerði fyrir Bayern München á móti Rauðu stjörnunni í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY
Það er óhætt að segja að Pólverjinn Robert Lewandowski sé markaskorari af guðs náð. Lewandowski skoraði fjögur marka þýska liðsins Bayern München í 6-0 sigri gegn Rauðu stjörnunni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fyrr í þessari viku en þetta er í annað skipti sem hann gerir það í þessari keppni. Það tók Lewandowski einungis 14 mínútur að skora þessi fjögur mörk en enginn hefur náð að skora jafn mörg mörk á svo skömmum tíma í leik í Meistaradeildinni. Þá er pólski framherjinn annar leikmaðurinn til þess að skora fjögur mörk oftar en einu sinni í keppninni en Lionel Messi hefur sömuleiðis tekist að gera það. Lewandowski hefur nú skorað 27 mörk í fyrstu 20 leikjum Bayern München í öllum keppnum á yfirstandandi leiktíð en sigurleikurinn gegn Fortuna Düsseldorf í þýsku efstu deildinni um síðustu helgi var fyrsti leikurinn þar sem hann var ekki á meðal markaskorara hjá liðinu. Þar lagði Lewandowski hins vegar sitt af mörkum með því að leggja upp mark Philippe Coutinho í þeim leik. Þessi 31 árs gamla markamaskína á fjöldann allan af metum tengdum markaskorun. Meðal þeirra er að hann er markahæsti erlendi leikmaðurinn í sögu þýsku efstu deildarinnar en Lewandowski hefur skorað 211 mörk fyrir Borussia Dortmund og Bayern München. Þá skoraði hann fimm mörk á níu mínútum í 9-0 sigri Bæjara á móti Wolfsburg en það er sneggsta fimma í sögu þýsku efstu deildarinnar.Kominn upp að hlið goðsögn hjá Bayern München Mörkin hans 61 fyrir pólska landsliðið gera Lewandowski að markahæsta leikmanni í sögu liðsins. Pólverjar hafa kosið hann besta leikmann ársins sjö sinnum sem er met. Þá hefur Lewandowski einu sinni verið kjörinn íþróttamaður ársins í Póllandi en það var árið 2015. Eins og sakir standa er Lewandowski markahæsti leikmaður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar með 10 mörk en hann varð þriðji fljótasti leikmaðurinn til þess að skora 50 mörk í keppninni með því að gera það í 77 leikjum. Lewandowski hefur skorað 63 mörk alls í keppninni sem gerir hann að fimmta markahæsta leikmanninum í sögu keppninnar. Af þessum 63 mörkum hafa 46 þeirra komið í búningi Bayern München sem gerir hann að markahæsta leikmanni félagsins í sögu þeirrar keppni. Þetta var í þriðja skipti sem Lewandowski skorar þrjú mörk eða meira á leiktíðinni sem er enn afar ung en hann hefur skorað 51 mark á almanaksárinu sem fer senn að ljúka. Lewandowski hefur skorað 16 mörk í fyrstu 12 leikjum Bayern München í deildinni í vetur en það gerir rúmlega 1,3 mörk í leik. Nái hann að halda uppteknum hætti fram á vorið mun hann slá met Gerds Müller yfir flest mörk á einni leiktíð í þýsku efstu deildinni. Müller skoraði 40 mörk tímabilið 1971 til 1972 en Lewandowski myndi skora 45 mörk haldi hann áfram að skora jafn mikið og hann hefur gert hingað til. Næsta mark Lewandowskis fyrir Bayern München gerir hann að næstmarkahæsta leikmanni í sögu félagsins en hann er jafn Karl-Heinz Rummenigge, núverandi stjórnarformanni hjá félaginu, með 218 mörk fyrir liðið. Hæpið er hins vegar að Lewandowski takist að skáka Müller sem er langt á undan Lewandowski og Rummenigge á toppi þess lista, en hann skoraði 564 mörk á sínum tíma.Ferillinn var afar nálægt því að taka aðra stefnu en síðar varð Leikmannaferill Lewandowskis var hársbreidd frá því að fara aðra leið en hann hefur farið en gosið í Eyjafjallajökli árið 2010 varð til þess að hann fór ekki til Blackburn Rovers eins og til stóð. Sam Allardyce sem var þá knattspyrnustjóri Blackburn Rovers vantaði tilfinnanlega stöðugan markaskorara í lið sitt og var með Lewandowski í huga til þess að bæta úr því. Allardyce hafði farið með njósnateymi sínu að sjá Lewandowski í leik með Lech Poznan og leist þeim vel á framherjinn sem hafði skorað 21 mark í 34 leikjum fyrir pólska liðið. Viðræður voru komnar langt á milli forráðamanna liðanna. Þegar Lewandowski átti að fljúga til Englands til þess að ganga frá kaupum og kjörum lágu öll flug niðri til Bretlands vegna gossins í Eyjafjallajökli. Í kjölfarið fékk John Williams, þáverandi stjórnarformaður hjá Blackburn Rovers, bakþanka yfir kaupverðinu sem var um það bil fjórar milljónir punda og ekkert varð af kaupunum. Lewandowski hefur reglulega verið orðaður við önnur stórlið í Evrópu og hefur Real Madrid þá helst verið nefnt til sögunnar. Hann nefndi það á einum tímapunkti að hann vildi yfirgefa herbúðir Bayern München þar sem hann væri ekki metinn að verðleikum. Forráðamenn þýska liðsins tóku það ekki í mál að hleypa Lewandowski frá félaginu og hafa líklega brugðist við með því að hækka launatékka hans umtalsvert.
Birtist í Fréttablaðinu Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira