Juholt hefur nú gegnt stöðu sendiherra á Íslandi í á þriðja ár og segir hann að hann vonist til að með bókinni verði hægt að auka sameiginleika landanna og samkennd. Dregur hann fram líkindi milli Svíþjóðar og Íslands, en einnig það sem er ólíkt, séð úr augum barna. Bókin ber heitið Svona gerum við. Við gerum svona.
„Bókin byggir á fínum myndum Börje Svensson. Mitt framlag er að ég hef skrifað þessa stuttu texta um Freyju og Oscar. Börnin segja hvort öðru frá lífi sínu í sínu heimalandi, um hefðir, sérstaka staði, mat og áhugamál,“ segir Juholt. Í bókinni segja þau Freyja og Oscar meðal annars frá Hallgrímskirkju, sænskar bolludagsbollur (s. semlor), elgum og fleiru.

Óhagnaðardrifið verkefni
Börje Svensson var með sýningu í sænska sendiherrabústaðnum síðasta vor og segir að það hafi fín upplifun. „Við „fundum hvorn annan֧“ og byrjuðum fljótlega að ræða um að vinna að verkefni saman. Ég sá hvað Håkan var virkur í sinni vinnu að auka tengslin milli Svíþjóðar og Íslands, svo ég lagði til að við myndum vinna saman litabók og hann beit á, var til í það.“Juholt segist hafa líkað mjög vel við hugmyndina um litabók fyrir börn. „Bókin er framlag til þess að auka áhuga á og þekkingu um hvert annað. Það er mikil hlýja og gleði í myndum Börje. Þetta er óhagnaðardrifið verkefni og það er von mín að bókin nái til sem flestra fjölskyldna og geri okkur forvitnari um hvert annað.“
Sala ætluð að standa straum af prentkostnaði
Juholt segir að litabókin verði til að byrja með seld á 400 krónur til að standa straum af prentkostnaði og að eftir það verði hægt að nálgast hana frítt. Vonast hann til að síðar verði hægt að dreifa litabókinni frítt í skóla, sjúkrahús, til félagasamtaka og allra þeirra sem áhuga hafa. Þó gætu einhverjir mánuðir liðið þar til að það verði hægt. „Þannig að þeir sem kaupa litabókina, gera það verkefni að möguleika,“ segir sendiherrann.Hann segir að hægt verði að nálgast bókina til dæmis með því að hafa samband í tölvupósti, hakan.juholt@gov.se, eða þá í gegnum Facebook-síðu hans.