Tiana Ósk setti nýtt Íslandsmet í San Diego Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2019 13:30 Tiana Ósk Whitworth. Mynd/Frjálsíþróttsamband Íslands
Íslandsmet féll á bandarískri grundu um síðustu helgi á Red-BlackSummerNightsAll-Comers frjálsíþróttamótinu í Kaliforníu. Spretthlauparinn Tiana Ósk Whitworth steig stórt skref í haust þegar hún hóf nám við SanDiegoStateUniversity í Bandaríkjunum.Tiana Ósk er byrjuð að keppa fyrir skólann sinn og metin eru farin að falla.Tiana Ósk keppti um síðustu helgi á sterku móti í 60 metra hlaupi, 150 metra hlaupi og 4×400 metra hlaupi utanhúss. 60 metra hlaup og 150 metra hlaup utanhúss eru ekki hefðbundnar keppnisgreinar en samt sem áður eru til skráð Íslandsmet í þeim greinum. Í 60 metra hlaupinu kom Tiana önnur í mark á 7,64 sekúndum sem er nýtt Íslandsmet. Vindur í hlaupinu var 0,0 m/s. Fyrra metið var 7,68 sekúndur sem Hafdís Sigurðardóttir setti árið 2013.Tiana Ósk á einnig Íslandsmetið í 60 metra hlaupi innanhúss ásamt Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttir en þær hafa báðar hlaupið á 7,47 sekúndum. Í 150 metra hlaupinu varð Tiana Ósk þriðja á 17,92 sekúndum í 1,7 m/s meðvindi. Í 4×400 metra boðhlaupi var Tiana hluti af sveit sem varð í öðru sæti á 3:49,60 sekúndum.i Ósk setti persónulegt met í 150 metra hlaupinu en það er ekki hægt að finna skráð Íslandsmet í 150 metra hlaupi á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Dýrmætur sigur HK-inga Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Tapaði titlinum í lokabeygjunni „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Ómar markahæstur í öruggum sigri Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Sjá meira