Trump og Pútin vilja hækka olíuverð Þórir Guðmundsson skrifar 10. apríl 2020 16:14 Sólin sest á bak við olíudælu í Karnesborg í Texas í Bandaríkjunum. Eric Gay/AP
Forsetar Rússlands og Bandaríkjanna ræddu í dag leiðir til að hækka heimsmarkaðsverð á olíu. Verð á hráolíu hefur lækkað úr tæplega 70 dollurum á tunnu í janúar í rúmlega 30 dollara nú og það lækkaði aftur á mörkuðum í morgun. Vladimir Pútin Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddust við í síma. Í tilkynningu frá Moskvu segir að forsetarnir hafi rætt leiðir til að koma á stöðugleika í olíuverði, meðal annars í tengslum við viðræður á vettvangi OPEC olíuframleiðsluríkja um að minnka framleiðsluna. Stór hluti gjaldeyristekna Rússa er af olíusölu og Bandaríkin hafa einnig hagsmuni af hærra verði sökum mikillar framleiðsluaukningar þar á olíu undanfarin ár. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem forsetarnir ræðast við. Í tilkynningu Rússlandsstjórnar segir að Trump hafi með Putin farið yfir samtöl sín við leiðtoga OPEC ríkja undanfarna daga. Verðlækkanir síðustu vikur hafa verið vegna samdráttar í eftirspurn, sem hefur fallið um 30 prósent eftir að kórónuveirufaraldurinn blossaði upp. Aðgerðir ríkja gegn sjúkdómnum hafa orðið til þess að stöðva farþegaflug víða um heim, draga úr umferð og takmarka efnahagsleg umsvif. Sérfræðingar um olíumarkaðinn segja að aðgerðir á vettvangi OPEC séu ólíklegar til að koma í veg fyrir að olíuverð haldi áfram að lækka.
Bensín og olía Donald Trump Rússland Bandaríkin Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira