Innlent

Guðmundur Franklín gersigraði Guðna að mati hlustenda Útvarps Sögu

Jakob Bjarnar skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Franklín Jónsson mótframbjóðandi hans tókust á í umræðuþætti á Stöð 2 í gærkvöld. Að mati hlustenda Útvarps Sögu kom Guðmundur þar talsvert betur fyrir.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Franklín Jónsson mótframbjóðandi hans tókust á í umræðuþætti á Stöð 2 í gærkvöld. Að mati hlustenda Útvarps Sögu kom Guðmundur þar talsvert betur fyrir. Vísir/Sigurjón

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun sem Útvarp Saga efndi til í kjölfar kappræðna sem Stöð 2 bauð uppá í gær milli forsetaframbjóðendanna Guðmundar Franklín Jónssonar og Guðna Th. Jóhannssonar, telur að þar hafi Guðmundur Franklín staðið sig betur.

Spurningin var einfaldlega: Hvor stóð sig betur í kappræðunum á Stöð 2? Niðurstaðan liggur nú fyrir, afgerandi en þeir sem segja Guðmundur Franklín eru 64,6% en þeir sem segja Guðni Th. Jóhannesson eru 35,5%.

Þetta gæti komið þeim á óvart sem tjáðu sig um þennan sama þátt á Twitter en þar fær Guðmundur Franklín heldur nöturlega útreið. Og samkvæmt skoðanakönnun sem kynnt var í þætti Stöðvar 2 hefur Guðni mikla yfirburði þegar litið er til fylgis.

Vart ætti að þurfa að nefna að netkannanir sem þessar þykja ekki mjög áreiðanlegar þó þær kunni með fyrirvörum að mæla baramóterinn innan tiltekinna hópa. En vert er að gera sér grein fyrir einmitt því en og hafa fyrirvara á að slíkar kannanir mæli stöðu mála almennt og yfirleitt. Þannig kom það flatt upp á Sturlu Jónsson vörubílsstjóra og stuðningsmenn hans þegar talið var uppúr kössunum þá er Sturla bauð sig fram til forseta, en þeir höfðu einkum litið til sambærilegra kannana og hér er fjallað um.


Tengdar fréttir

„Ertu stoltur af framgöngu þinni í kvöld?“

„Ert þú stoltur af því að vera Íslendingur? Nú kallar þú þjóð þína meðal annars þrasgjarna, fávísan lýð og rasista. Fyrir það að berjast í þorskastríðunum. Eins veltirðu fyrir þér hvort hún eigi almennt að vera sjálfstæð í útvarpsviðtali í Speglinum í kring um IceSave,“ spurði Guðmundur Franklín Jónsson, forsetaframbjóðandi, Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands að í umræðuþætti á Stöð 2 í kvöld.

„Þetta var í senn skemmti­legt og sorg­legt”

Grétar Þór Eyþórsson, professor við Háskólann á Akureyri, segir forsetaframbjóðandann Guðmundur Franklín Jónsson ekki hafa komið málefnanlega frá sjónvarpskappræðunum á Stöð 2 í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×