Séra Friðrik snýr sér við í gröf sinni Jakob Bjarnar skrifar 19. júní 2020 12:07 Guðmundur Jör er einn fjölmargra stuðningsmanna Vals sem lýsir yfir hinni mestu skömm á ályktun stjórnar Knattspyrnufélagsins Vals. Varaformaður stjórnar var Þorgrímur Þráinsson rithöfundur þá er hin umdeilda ályktun var skrifuð. „
Man ekki til þess að hafa áður skammast mín fyrir að vera Valsari en ég geri það í dag. Stjórn Vals hefur hér sannarlega látið kappið bera fegurðina ofurliði,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður og stuðningsmaður Vals. Hann íhugar nú stöðu sína. Guðmundur skrifar þetta inn á sérstaka stuðningsmannasíðu Vals á Facebook – Fjósið – og lætur fylgja nýlega ályktun stjórnar Knattspyrnufélags Vals. Umdeild ályktun stjórnar knattspyrnufélagsins Í Fjósinu logar allt vegna yfirlýsingarinnar sem snýr að þeim fyrirætlunum borgaryfirvalda um að reisa smáhýsi í Hlíðahverfi, fyrir neðan Eskihlíð. Smáhýsi eru ætluð einstaklingum sem erfiðlega hefur gengið að útvega búsetuúrræði vegna áfengis- og vímuefnaneyslu eða annarra veikinda. Fréttastofan fjallaði ítarlega um málið í gær eins og hér má sjá en þar var meðal annars greint frá sérstakri yfirlýsingu sem aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals sendi frá sér þar sem lýst er yfir áhyggjum af þessum fyrirætlunum. Stjórnin telur „afar óheppilegt að ofangreind búsetuúrræði í svo mikilli nálægð við Hlíðarenda þar sem öflug íþróttastarfsemi fer fram. „Rúmlega 1.000 ungmenni æfa með Val og meirihluti þeirra býr í þeim hverfum þar sem smáhýsum verður komið fyrir. Er skjólstæðingum velferðarsviðs enginn greiði gerður með því að hýsa þá á þessu svæði auk þess sem það gæti vakið óöryggi og ótta meðal ungra íþróttaiðkenda sem búa í hverfinu og eiga þar leið um,“ segir meðal annars í ályktuninni. En stjórnin telur að það sé hagur þeirra að búa á öruggara svæði þar sem síður reyni á samskipti þeirra við börn og ungmenni sem eiga þar leið um. Valsfjósið logar „Er það í alvöru vilji Valsara að koma í veg fyrir að fólk sem minna mega sín fái aðstoð og skammtíma heimili nálægt Hlíðarenda? Þetta finnst mér skammarleg afstaða íþróttafélags sem ég hef alltaf staðið i þeirri trú að bjóði alla velkomna,“ segir Gísli Ólafsson sem vekur máls á yfirlýsingu stjórnar. Þeir sem taka til máls eru ýmist sammála Gísla og svo Guðmundi eða stjórninni. „Þetta er nú ekki í anda Vals,“ segir Örvar Smárason og Vala Smáradóttir segir: „Lélegt Valur, lágkúrulegt! Þetta er ekki skrifað í mínu nafni sem Valsari!“ Valsfjósið, þar sem stuðningsmenn Vals koma saman til að skiptast á skoðunum, logar. Þar skiptast menn á skoðunum um ályktun stjórnar knattspyrnufélagsins en hún leggst gegn fyrirætlunum borgaryfirvalda um að koma upp smáhýsabyggð í grennd við Hlíðarenda.visir/bára Smári Þórarinsson segir: „Ekki í mínu nafni. Mannúðin skal alltaf ráða för. Friðrik hefði haldið utan um lítilmagnan.“ Hér er vísað til séra Friðriks Friðrikssonar sem kom að stofnun Vals árið 1911 en hann hefur stöðu einskonar verndardýrlings félagsins. Ýmsir eru þó sammála stjórninni og benda á að þetta sé leið barnanna í Valsheimilið og skiptast menn mjög í tvö horn. Hefur myndast langur umræðuhali þar sem tekist er á um þetta mál. Valsmenn ekki svo léttir í lund Sverrir Diego er einn þeirra sem vill gjalda varhug við smáhýsabyggðinni: „Ég geng þarna framhjá daglega og oft er mikið rusl þarna í kring. Á þriðjudagskvöld var lögreglan að pikka upp einstakling sem hafði látið lífið út af ofneyslu þarna og þykir mér slík aðkoma sorgleg en um leið ekki barnvæn,“ segir Sverrir meðal annars. Gunnar Gunnarsson segir þetta ekki gott: „Séra Friðrik er ekki ánægður með þetta. Valur er félag mannúðar og virðingar. Hlúum að þessu ógæfufólki. Við fæðumst ekki fullkominn. Margir misstíga sig í lífinu. Þetta eru samt okkar bræður og systur. Tökum vel á móti þeim og hjálpum þeim að byggja sig upp. Mannelska og virðing gerir kraftaverk. Ekki nóg að vera „Valsmenn léttir í lund“ á hátíðarstundum. Sýnum úr hverju við erum gerðir.“ Uppfært 13:18 Í fyrri útgáfu var mynd af E. Berki Edvardssyni formanni knattspyrnudeildar Vals en sú deild innan Knattspyrnufélagsins kom í engu að umræddri ályktun heldur var það aðalstjórnin sem stóð að henni. Lesendur og Börkur eru beðnir velvirðingar á þessum misgáningi.
Reykjavík Skipulag Valur Borgarstjórn Mest lesið Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Ekkert lát á sumarveðrinu Veður Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Fleiri fréttir Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Sjá meira