Innlent

Fækkun landa á áhættulista til skoðunar

Telma Tómasson skrifar
Þórólfur Guðnason
Þórólfur Guðnason Vísirl/Baldur

Hugsanlegt verður hægt að taka lönd af áhættulista vegna kórónuveirunnar fyrr en áætlað var, segir sóttvarnalæknir. Heimkomusmitgát kemur til framkvæmda í dag.

Frá og með deginum í dag skulu þeir sem eru búsettir hér á landi, eru íslenskir ríkisborgarar eða hafa mikið tengslanet hérlendis og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins, viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í 4 til 5 daga. Eftir það fer viðkomandi í aðra sýnatöku og reynist hún neikvæð er óhætt að hætta smitgátinni.

„Þetta er gert til þess að reyna að koma í veg fyrir að einstaklingar sem eru með neikvæð sýni geti þróað með sér smit á fyrstu dögunum eftir það,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.

„Við höfum séð það núna og sáum fyrr í vetur að mesta áhættan á smiti hér innanlands er frá Íslendingum sem eru að koma inn erlendis frá. Við sáum það fyrir tveimur til þremur vikum síðan að þeir sem eru með mikið tengslanet hér geta leitt til mikils smits og víðtækt og það er það sem verið er að reyna að koma í veg fyrir.“

Búum að verðmætum upplýsingum

Engin smit hafa til þessa komið frá erlendum ferðamönnum, mikilvægar upplýsingar liggja fyrir og stöðugt er unnið að því að gera vinnuna markvissari.

„Þetta eru upplýsingar sem aðrar þjóðir hafa ekki. Ef við hefðum ekki gert þetta svona þá hefðum við rennt algjörlega blint í sjóinn og ekki vitað neitt um það hvað við erum að gera í grófum dráttum,“ segir Þórólfur.

„Það sem við getum líka gert núna er að taka lönd af þessum áhættulista og sleppt því að skima einstaklinga sem hafa verið í ákveðnum löndum þar sem útbreiðslan hefur ekki verið mikil.“

Í því samhengi nefnir Þórólfur að hann hafi horft til næstu mánaðamóta í þessum efnum - „en hugsanlega verður hægt að hrinda því í framkvæmd fyrr.“

Unnt er að kynna sér uppýsingar um heimasmitgát á heimasíðu Landlæknis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×