Innlent

Óttast mest einkennalausar félagsverur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Rögnvaldur Ólafsson, Þórólfur Guðnason og Páll Þórhallsson á fundi dagsins.
Rögnvaldur Ólafsson, Þórólfur Guðnason og Páll Þórhallsson á fundi dagsins. Lögreglan

Þórólfur Guðnason segir það hafa komið sér á óvart hversu vel „opnun landamæra“ Íslands hefur tekist til þessa. Ekkert innanlandssmit hefur greinst undanfarnar tvær vikur og eru aðeins 11 í einangrun sem stendur. Það segi þó ekki alla söguna, ekki þurfi nema einn víðförlan smitbera til að koma af stað hópsýkingu að sögn Þórólfs. Persónulega óttist hann mest einkennalausar félagsverur, þær séu líklegastar til að smita út frá sér.

Þórólfur var spurður á almannavarnafundi dagsins hvort hann undraðist það að ferðamenn, sem komið hafa hingað til lands frá 15. júní þegar tilslakanir tóku gildi á landamærunum, hafi ekki smitað meira út frá sér en raun ber vitni. Sóttvarnalæknir sagðist alveg geta fallist á það, hann hafi jafnvel búist við því að smitin yrðu fleiri og að innanlandssmitum myndi fjölga eitthvað.

Tekin hafa verið næstum 41 þúsund sýni á landamærunum og af þeim hafa 14 bent til virks smits. Engin hópsýking hefur komið upp frá 15. júní og eru 11 einstaklingar í einangrun sem stendur.

„Maður er hræddur við þá einstaklinga“

Þórólfur segist þó ekki hafa verið þeirrar skoðunar að hér kæmi aftur upp stór faraldur með landamæratilslökununum. Tölurnar hér að ofan beri það þó með sér að landsmönnum hafi tekist að kæfa þær örfáu sýkingar sem komið hafa upp. Sá góði árangur hafi komið Þórólfi á óvart enda gat allt eins verið að fleiri sýkingar myndu berast hingað til lands með þeim tugum þúsunda ferðamanna sem lagt hafa leið sína hingað undanfarnar vikur.

Þó sé ekki öll sagan sögð að mati Þórólfs. Lítið megi út af bregða til að hér blossi upp hópsýking. Margir smitberar séu einkennalausir og eru þeir, að mati Þórólfs, þeir hættulegustu þegar baráttan gegn veirunni er annars vegar. Þeir gætu farið á milli margra einstaklinga, án þess að átta sig á því að þeir séu smitaðir, og fyrir vikið smitað marga út frá sér. „Maður er hræddur við þá einstaklinga,“ sagði Þórólfur.

Hann sagði jafnframt að Íslendingar séu enn að læra eitthvað nýtt um veiruna á hverjum degi. Mikilvægt sé að nýta þá þekkingu sem verður til í hverju skrefi baráttunnar og draga af henni lærdóm, áður en lengra er haldið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×