Erlent

Morðinginn talinn hafa drepið annan „karlréttinda“-lögmann

Kjartan Kjartansson skrifar
Mynd úr eftirlitsmyndavél sem er talin vera af Den Hollander þegar hann fór um Sambandslestarstöðina í Los Angeles 7. júlí, fjórum dögum áður en hann er talinn hafa skotið keppinaut sinn í „karlréttinda“-hreyfingunni til bana.
Mynd úr eftirlitsmyndavél sem er talin vera af Den Hollander þegar hann fór um Sambandslestarstöðina í Los Angeles 7. júlí, fjórum dögum áður en hann er talinn hafa skotið keppinaut sinn í „karlréttinda“-hreyfingunni til bana. AP/lögreglustjórinn í San Bernardino-sýslu

Karlmaður á áttræðisaldri sem skaut son bandarísks alríkisdómara til bana og særði eiginmann hans áður enn hann svipti sig lífi fyrr í þessum mánuði er talinn hafa drepið annan baráttumann fyrir „karlréttindum“ í Kaliforníu nokkrum dögum áður. Maðurinn var þekktur fyrir kvenhatur og tilefnislausar málsóknir.

Daniel Anderl, tvítugur sonur Esterar Salas, svæðisdómara, var skotinn til bana þegar hann kom til dyra á heimili fjölskyldunnar í New Jersey sunnudaginn 19. júlí. Árásarmaðurinn, sem var dulbúinn sem hraðsendill, særði einnig Mark Anderl, eiginmann dómarans. Salas slapp ómeidd.

Morðinginn fannst látinn í vegarkanti í New York-ríki nokkrum klukkustundum eftir skotárásina. Hann virtist hafa skotið sjálfan sig í höfuðið. Hann hét Roy Den Hollander, 72 ára gamall lögfræðingur, sem lýsti sjálfum sér sem „andfemínista“ og höfðaði fjölda mála til stuðnings svonefndra „karlréttinda“, yfirleitt án árangurs.

Nokkrum dögum fyrir ódæðið í New Jersey er Den Hollander sagður hafa ferðast til San Bernardino í Kaliforníu þar sem hann skaut Marc Angelucci, annan karlréttindalögmann, til bana. Den Hollander er talinn hafa verið öfundsjúkur út í Angelucci sem hafði unnið sigur í dómsmáli sem hann höfðaði gegn því að aðeins karlmenn væru kallaðir upp til herþjónustu. Den Hollander hafði höfðað sambærilegt mál en Salas dómari hafði enn ekki tekið það fyrir.

Esther Salas var fyrsta konan af rómönskum ættum til að gegna embætti svæðisdómara í Bandaríkjunum þegar Bandaríkjaþing staðfesti skipan hennar árið 2011. Barack Obama, þáverandi forseti, tilnefndi hana.AP/Rutgers-lagaskólinn

Í fórum Den Hollander fannst listi af nöfnum á annars tugs einstaklinga sem hann gæti hafa ætlað að gera mein. Auk Salas og Angelucci voru þar nöfn þriggja kvendómara og tveggja krabbameinslækna. Einn þeirra hafði annast Den Hollander sem sagði gömlum félaga í desember að hann þjáðist af sjaldgæfu húðkrabbameini, að sögn New York Times.

Skrif Den Hollander benda til þess að hann hafi verið haldinn djúpstæðu hatri á konum. Hann sakaði móður sína um að hafa komið í veg fyrir að hann eignaðist kærustu og rússneska fyrrverandi eiginkonu sína um að hafa aðeins gifst sér til að fá dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Þá hafði hann óra um að beita kvenkyns dómara í skilnaðarmáli hans kynferðislegu ofbeldi.

Í hátt í tvö þúsund blaðsíðna „sjálfsævisögu“, sem AP-fréttastofan segir fulla af kvenhatri og rasisma, skrifaði Den Hollender að hann ætlaði að berjast gegn „femínasistum“ allt fram á síðasta dag. New York Times segir að mál hans sé dæmi um hvernig orðræða og gjörðir sumra í svonefndri „karlréttindahreyfingu“ hafi orðið ofbeldisfyllri og meira ógnandi í garð kvenna undanfarið.


Tengdar fréttir

Dulbúinn maður skaut son dómara til bana

Lögregla leitar nú manns sem skaut son alríkisdómara til bana og særði eiginmann hans á heimili fjölskyldunnar í New Jersey í Bandaríkjunum í gær. Morðinginn er sagður hafa verið dulbúinn sem hraðsendill og flúið af vettvangi eftir ódæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×