Lazio vill fá David Silva til að taka þátt í Meistaradeildarævintýri liðsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2020 16:00 David Silva í leik Manchester City og Norwich City á sunnudaginn. Það var hans síðasti leikur í búningi City. getty/Tom Flathers
Lazio snýr aftur í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili eftir þrettán ára bið og vill bæta við sig reynslumiklum leikmönnum sem geta hjálpað liðið í þeirri baráttu. Meðal reynslubolta sem Lazio horfir til er spænski miðjumaðurinn David Silva. Hann hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester City eftir áratug hjá félaginu. Samkvæmt heimildum Gazzetta dello Sport hitti Silva Igli Tare, íþróttastjóra Lazio, á dögunum. Félög í Katar hafa einnig áhuga á hinum 34 ára Silva sem varð tvisvar sinnum Evrópumeistari og einu sinni heimsmeistari með spænska landsliðinu á sínum tíma. Lazio er í 4. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 75 stig. Liðið tekur á móti Birki Bjarnasyni og félögum í Brescia í næstsíðustu umferðinni klukkan 17:30 í kvöld. Lazio var lengi vel í toppbaráttu en rýr uppskera í fyrstu leikjunum eftir hléið vegna kórónuveirufaraldursins gerðu vonir liðsins um fyrsta meistaratitilinn síðan 2000 að engu. Lazio er samt öruggt með sæti í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn frá tímabilinu 2007-08. Silva lék sinn 434. og síðasta leik fyrir City þegar liðið sigraði Norwich City, 5-0, í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.
Ítalski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira