CrossFit samtökin birtu dramatískt myndband og kafla úr bók Katrínar Tönju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2020 09:30 Keppinautar Katrín Tönju Davíðsdóttur sýndu henni mikinn stuðning og samhug eins og sést vel í myndbandinu á Instagram síðu CrossFit heimsleikanna. Skjámynd/Instagram
Dramatísk upplifun Katrínar Tönju Davíðsdóttur frá undankeppni heimsleikanna fyrir sex árum var gerð góð skil á Instagram síðu heimsleikanna um Verslunarmannahelgina. CrossFit samtökin hafa undanfarið lagt mikla áherslu á að sýna fram á breytta og betri tíma innan íþróttarinnar og meðal annars hafa þau rifjað upp þá samheldni og samhug sem besta CrossFit fólk heimsins hefur oft sýnt í keppni. Eins og okkar CrossFit fólk hefur margoft sýnt fram á og talað um þá er mikill og góður vinskapur á milli fólks sem stundar CrossFit íþróttina og allir eru hluti af CrossFit fjölskyldunni. Katrín Tanja Davíðsdóttir fór fyrir gagnrýni CrossFit fólksins á eiganda CrossFit samtakanna sem átti eflaust sinn þátt í því að það urðu eigandaskipti hjá CrossFit. Katrín Tanja hótaði því að keppa aldrei aftur á vegum CrossFit samtakanna ef Greg Glassman yrði áfram eigandi CrossFit samtakanna en hann hefur nú selt CrossFit til Eric Roza. Fram undan eru heimsleikarnir í september en þeim hefur reyndar þegar verið frestað í tvígang vegna kórónuveirufaraldursins. Katrín Tanja verður vonandi meðal keppanda þar. Katrín Tanja var í aðalhlutverki í nýrri færslu CrossFit samtakanna þar sem rifjuð var upp afar dramatísk stund frá því í undankeppni Evrópu fyrir heimsleikanna árið 2014. Katrín Tanja lenti þá á „vegg“ og brotnaði niður í miðri æfingu sem henni gekk illa að klára. Katrín Tanja skrifaði um þessa upplifun sína í bók sinni „Dottir“ sem kom út á síðasta ári. Það leit út fyrir að Katrín Tanja ætlaði ekki að standa upp aftur og að hún ætti ekki afturkvæmt í keppnina. „Neikvæðnin flæddi um huga minn og ýtti út öllum jákvæðum hugsunum. Ég skammaðist mín og var svo berskjölduð fyrir framan allt þetta fólk,“ skrifaði Katrín Tanja í bók sinni. CrossFit samtökin birtu brot úr bók hennar og sýndi með því myndbandið af því sem gerðist í framhaldinu. Þar má sjá Anníe Mist Þórisdóttur og Björk Óðinsdóttur meðal annars reyna að tala sína konu til en það þurfti á endanum alvöru hreinskilið samtal frá hinni ensku Samönthu Briggs til að bjarga Katrínu Tönju frá því að drukkna í neikvæðninni. Katrín Tanja lýsti þessu í bókinni sinni. „Sam Briggs hafði klárað æfinguna fjórum mínútum fyrr. Hún og Björk Óðinsdóttir höfðu síðan komið yfir allan keppnisvöllinn og til mín. Sam fór niður á hné og talaði mig til baka frá bjargbrúninni: Þú hefur eina mínútu og svo ferðu af stað. Gefðu mér eina ferð upp reipið. Skilurðu það, segir Katrín að Briggs hafði sagt við sig. Hún sýndi henna enga samúð. Þetta var skipun, rifjaði Katrín Tanja upp í bókinni sinni. Katrín Tanja Davíðsdóttir missti af heimsleikunum 2014 en snéri sterk til baka og varð heimsmeistari bæði 2015 og 2016. Það má sjá þessa færslu og upprifjun CrossFit samtakanna hér fyrir neðan. View this post on Instagram The floodgates in my mind exploded open and a tidal wave of negativity engulfed my last remaining life raft of positivity. I felt embarrassed and exposed in front of all those people. Time stopped for a moment as the thoughts raced through my head, then everything came crashing down. To my surprise, I didn t even get up. I rolled over, sat on my heels, covered my face, and unsuccessfully fought back tears. With three minutes and thirty seconds on the clock, I quit. @bicepslikebriggs had now been done with her workout for almost four minutes. She and @bjorkodins had walked back to the ropes from their finish line on the opposite side of the competition floor. Sam took a knee and talked me off the cliff. You ve got one minute, then you go. Give me one rope climb, got it? Sam s thick Mancunian accent had no sympathy. Now get up, she said. It was an order. Excerpt from @katrintanja and @RoryMcKernan collaboration Dottir. Walk the road of two-time Fittest Woman on Earth in Dottir, available on Amazon and via additional publishers. Link in bio. #CrossFitGames #CrossFit #Fitness #CFGHistory #CrossFitRegionals A post shared by CrossFit Games (@crossfitgames) on Jul 31, 2020 at 3:58pm PDT
CrossFit Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira