Norðmenn léku sér að Ungverjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2020 18:47 Sagosen var markahæstur Norðmanna með sjö mörk. vísir/epa
Norðmenn rúlluðu yfir Ungverja, 36-29, þegar liðin mættust í milliriðli II á EM í handbolta í dag. Watch the Game Highlights from Norway vs. Hungary, 01/17/2020 pic.twitter.com/Wu72eIGjpI— EHF EURO (@EHFEURO) January 17, 2020 Noregur hefur unnið alla leiki sína á EM og eru með fjögur stig í milliriðlinum. Ungverjaland er með tvö stig. Norðmenn byrjuðu leikinn miklu betur, skoruðu fyrstu fjögur mörkin og eftir tíu mínútur var staðan 9-2, Noregi í vil. Eftir rúmar 17 mínútur var munurinn orðinn tíu mörk, 15-5. Norðmenn leiddu svo í hálfleik, 20-12. Noregur skoraði því fleiri mörk í fyrri hálfleik en Ísland gerði í öllum leiknum gegn Ungverjalandi á miðvikudaginn. Seinni hálfleikurinn var óspennandi enda úrslitin svo gott sem ráðin. Ungverjar minnkuðu muninn í fjögur mörk, 23-19, en Norðmenn svöruðu með 5-1 kafla og náðu heljartaki á leiknum. Á endanum munaði svo sjö mörkum á liðunum, 36-29. Sander Sagosen skoraði sjö mörk fyrir Noreg og Göran Johannessen sex. Bence Nagý og Patrik Ligetvari skoruðu fimm mörk hvor fyrir Ungverjaland.
EM 2020 í handbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira