Skoðun

Vinnum saman að betri heimi

Hrönn Ingólfsdóttir skrifar

Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum á mörgum sviðum og það dynja á okkur fréttir af loftslagsvá og misrétti í heiminum. Það er ljóst að við erum ekki að ná þeim árangri sem við þurfum til að ná Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna  fyrir árið 2030, né heldur markmiðum Parísarsamkomulagsins, ef framvindan verður eins hæg og hún hefur verið. Það þarf að spýta töluvert í lófana til að það takist. 

Viðskiptalífið er ekki að vinna nógu hratt að umbreytingunni sem þarf að verða og verður að taka betur við sér. Fyrirtæki verða að taka skýra afstöðu, taka forystu og sýna djörfung við umbreytingu á viðskiptalíkönum og hagkerfinu svo það verði réttlátara.  Við erum ekki að breyta hegðun okkar nógu hratt. Skoðum hvað Forbes segir um fimm helstu áhersluþættina í samfélagsábyrgð fyrirtækja fyrir árið 2020.

Gagnsæi

Fyrsti áhersluþátturinn er gagnsæi. Áhugi fjárfesta á umhverfis- og félagsþáttum ásamt stjórnarháttum (ESG) hefur aukist hratt og samfélagslega ábyrgar fjárfestingar eru að verða normið. Gert er ráð fyrir að áhugi fjárfesta og annarra hagaðila á gagnsæi muni aukast enn frekar. Það leiði svo til aukinnar áherslu á að gæði upplýsinga séu staðfestar af þriðja aðila.

Kolefnishlutleysi

Annar áhersluþáttur sem var nefndur er kolefnishlutleysi. Þótt mörg fyrirtæki hafi stigið stór skref til að draga úr umhverfisáhrifum frá starfsemi sinni gera hagaðilar kröfu um að fyrirtæki útrými þeim með öllu. Búast má við að fleiri fyrirtæki vinni hraðar að kolefnishlutleysi og taki stærri skref í átt að sorpfríu fyrirtæki (zero waste) á komandi ári.

Starfsfólk við stjórnvölinn

Þriðji áhersluþátturinn er aukin krafa frá starfsfólki um að leiðtogar fyrirtækja taki þátt í umræðu um opinbera stefnumótun í sínu nærsamfélagi og standi skil á gerðum sínum (eða aðgerðaleysi) gagnvart starfsfólki. Fyrirtæki stuðli að ávinningi fyrir samfélagið í heild. Sérfræðingar eru að sjá fyrir sér að á árinu 2020 verði viðskiptalífið í sviðsljósinu og áhersla verði á umræðu um hlutverk fyrirtækja í samfélaginu og framtíð kapítalismans. Það reynir á okkur sem störfum að þessum málaflokki að láta í okkur heyra.

Tilgangur

Fjórði áhersluþátturinn fyrir árið 2020 er leit fólks að tilgangi.Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að starfsmenn vilja helst vinna fyrir fyrirtæki sem trúa á málstað eða hafa tilgang. Rannsóknir hafa einnig sýnt að ef fyrirtæki gera starfsfólki kleift að sinna sjálfboðastarfi eykur það starfsánægju. Starfsfólk mun gera kröfu um að vinnuveitendur aðstoði við að uppfylla víðtækari tilgang þeirra. 

Áhrif

Að lokum er gert ráð fyrir að samfélagsábyrgðin haldi áfram að þroskast og muni endurspeglast sterkar í heildarstefnu fyrirtækja og skýrslugjöf þeirra. Margir telja þó að skýrslugerðin sé orðin of fræðileg fyrir hagaðila svo það megi búast við nýjum leiðum til að setja gögn fram á einfaldari hátt t.d. gera þau sjónrænni. 

Það eru aðeins tíu ár þangað til að við eigum að vera búin að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Það kallar á að fyrirtæki taki sig á og það kallar á djörf markmið. 

Næsti áratugur mun einkennast af endurskilgreiningu kapítalismans þar sem neytendur, stjórnvöld og almennir borgarar munu krefjast þess að fyrirtæki endurskoði hefðbundin viðskiptamódel. Fyrirtæki sem taka upp viðskiptamódel sem eru hönnuð með sjálfbærni í huga og sem vaxa á sjálfbæran hátt mun farnast best.

Vinnum saman að betri heimi. Tökum góðar ákvarðanir fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. 

Höfundur er stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×