Arnþrúður segir sig og Útvarp Sögu á dauðalista Djúpríkisins Jakob Bjarnar skrifar 12. febrúar 2020 10:33 Arnþrúður telur sig sæta ofsóknum af hálfu djúpríkisins og er nú að undirbúa stofnun stjórnmálaflokks sem hefur það á stefnuskránni að berjast gegn því og inngróinni spillingu á Íslandi.
Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri gefur ekkert fyrir dóm sem hún hlaut í gær vegna meiðyrða í garð Reynis Traustasonar blaðamanns. Hún segir þau orð standa. Algerlega. Í sínum huga. Það sem meira er; hún telur dómarann hafa lagt sér orð í munn. Hún ætlar að áfrýja málinu til Landsréttar, eins og fram kom í tilkynningu lögmanns hennar, Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni og ef Landsréttur staðfestir dóminn þá er henni nauðugur sá kostur að fara með málið til Evrópu, fyrir Mannréttindadómstólinn þar. Vísir gerði ítrekaðar tilraunir til að ná í Arnþrúði Karlsdóttur útvarpsstjóra í gær með það fyrir augum að fá viðbrögð hennar við dómi sem féll í héraði í gær í máli Reynis Traustasonar blaðamanns á hendur henni. Tvenn ummæli hennar voru dæmd dauð og ómerk og var henni gert að greiða Reyni 300 þúsund í málsvarnarlaun og málskostnað sem nemur 1,1 milljón króna. En, það kom ekki að sök þó ekki tækist að ná tali af útvarpsstjóranum. Arnþrúður gerði, ásamt Pétri Gunnlaugssyni helsta útvarpsmanni Útvarps Sögu, málið að sérstöku umtalsefni á öldum ljósvakans í gær. Hún sagðist standa við orð sín, hún hafi ítrekað sjálf orðið fyrir lygaskrifum, bæði um sig og sína persónu sem og Útvarp Saga af hálfu Reynis, þegar hann var ritstjóri DV. Þar hafi birst misvísandi fyrirsagnir sem svo ærðu óstöðuga í athugasemdakerfi og þar fengi hún að ósekju yfir sig holskeflu óhróðurs. Arnþrúður sagist ekki hafa það að venju að fjalla um sig og sín mál á Útvarpi Sögu en hún ætlaði að gera undantekningu og að hún áskildi sér fullan rétt til þess að hafa uppi varnir í málinu. Hefnd vegna vasklegrar framgöngu í Icesavemálinu Dómnum ætlar Arnþrúður að áfrýja. Hún sagði jafnframt að dómarinn hafi lagt sér orð í munn. Hún hafi ekki sagt að Reynir væri morðingi heldur hafi hann lagt líf fólks í rúst. Það væri ekki það sama. Í sjálfu sér kom niðurstaðan þeim Arnþrúði og Pétri ekki á óvart. Þau hafi unnið sér það til óyndis innan kerfisins að hafa barist hart í Icesave-málinu. „Svona virkar kerfið. Þetta tengist Icesave,“ segir Arnþrúður sem fór yfir það að þau hafi safnað þúsundum undirskrifta fyrir forsetann. Útvarpi Sögu hafi verið kennt um hvernig fór með það mál. Arnþrúður og Pétur fóru yfir nokkur mál á öldum ljósvakans í gær sem þau hafa til marks um ofsóknir af hálfu djúpríksins. Þau segjast vera á dauðalista. „Ég fékk það staðfest hjá fyrrum ráðherra, við vorum á dauðalista sem þá var notaður á fyrirtæki. Sem kostaði okkur 7 milljónir. Sem leiddi til þess að við fórum í þrot,“ sögðu þau Pétur og Arnþrúður sem sögðu að þeim væri hegnt fyrir að varpa ljósi á það sem væri að gerast. „Alltaf erfiðast að lesa í atburði líðandi stundar. Við erum hötuð af sumum að hafa þessar upplýsingar. Við tölum um Djúpríkið, krumlurnar eru á bak við tjöldin. Alls staðar með sína menn í kerfinu.“ Á dauðalista Djúpríkisins Þetta hefði svo smitáhrif. Ef fólk á þessum dauðalista væri til umfjöllunar fyrir dómsstólum, þá væri hann dæmdur. „Ítrekað. Ef nafn mitt hefur komið þar upp, þá skal þar bara dæmt og dæmt og dæmt. Sama hvaða sönnunargögn ég legg fram,“ sagði Arnþrúður. Þetta snérist um trúverðugleika vitnis sem væri alltaf matsatriði. „Ef viðkomandi vitni og vitnisburður kemur frá þeim sem telst vera óvinur ríkisins þarf dómari ekki að taka það gilt. og það er vandamálið fyrir íslenskum rétti í dag, geðþóttaákvörðun hver fer inn á lista yfir óvini djúpríkisins og nýt ekki réttarverndar fyrir íslenskum dómsstólum.“ Þetta er lykilatriði að mati þeirra Arnþrúðar og Péturs. Það væri bullandi og djúpstæð spilling á Íslandi. Þau eru ekkert alltof bjartsýn á að hljóta réttláta málsmeðferð í Landsrétti og ef þar fer sem þau grunar þá muni málið fara fyrir Mannréttindadómsstól Evrópu. Reynir og lögmaður hans Gunnar Ingi Jóhannsson við flutning málsins. Gunnar Ingi sem lýsti dómnum í gær sem svo að um fullnaðarsigur væri að ræða. Arnþrúður var hvorki viðstödd málflutninginn sjálfan né dómsuppsögu í gær.visir/vilhelm Pétur og Arnþrúður sögðu þetta snúast um tjáningarfrelsið og ef tekst að þrengja að því sé tómt mál að tala um önnur mannréttindi. „Ef við höfum ekki tjáningarfrelsi til að afhjúpa spillingu þá bara vex spillingin.“ Nokkur dæmi um ofsóknir gegn Útvarpi Sögu Arnþrúður og Pétur nefndu nokkur dæmi um ofsóknir sem þau telja sig hafa mátt þola. Eins og þegar haturslögreglan rak mál á hendur Pétri. „Til skammar fyrir alla sem að því komu,“ sagði Arnþrúður en þar hafi verið lagt upp með að eyðileggja mannorð Péturs og þrengja að Útvarpi Sögu fjárhagslega. Eigna og ærumissir. „Og dómur sem gekk gegn mér í fyrra,“ segir Arnþrúður um mál þar sem kona fór í mál við Útvarp Sögu vegna láns sem hún sagðist hafa veitt Arnþrúði en Arnþrúður sagði að allir á Útvarpi Sögu vissu að hún væri styrktaraðili stöðvarinnar. „Í því máli reyndi hún að múta mér. Fá mig til að fjalla um ákveðinn einstakling hér í þjóðfélaginu, vildi að við myndum ráðast á hann. Nei vinkona, hún var styrktaraðili stöðvarinnar, þegar hún heyrir að við viljum ekki fara í níðumfjöllun um mann úti í bæ segir hún skyndilega að þetta hafi verið lán. Það var ekki tekið til greina í héraði og Landsrétti.“ Og var Arnþrúður dæmd til að greiða konunni 3,3 milljónir króna. Arnþrúður og Pétur ætla ekki að láta djúpríkið lemja sig til þagnar. Þetta snýst um tjáningarfrelsi og þegar að því er þrengt þá er tómt mál að tala um önnur mannréttindi. Arnþrúður og Pétur gerðu dóm sem Arnþrúður hlaut að umfjöllunarefni á Útvarpi Sögu í gær.skjáskot útvarp saga Og enn eitt dæmi tóku þau til sem er mál sem Sigurður G. Tómasson fyrrverandi útvarpsmaður og einn stofnanda Útvarps Sögu fór í við Arnþrúði, sem tók við Útvarpi Sögu af honum, Ingva Hrafni Jónssyni og Hallgrími Thorsteinssyni. En hann krafðist ógreiddra launa. Og hafði hann sigur fyrir dómsstólum í því máli. „Sagði að sér hafi verið sagt upp með sms. Fór með þetta í blöðin. En, svo var hann búinn að týna símanum og þurfti ekki að sanna neitt.“ Ætla að stofna stjórnmálaflokk til að berjast gegn Djúpríkinu Allt þetta og meira til hafa þau Arnþrúður og Pétur til marks um að að þeim sé sótt af hálfu Djúpríkisins. En þau ætla ekki að gefast upp. „Við þessi stöð berjumst áfram með okkar hlustendur sem hafa hjálpað okkur gríðarlega. Fleiri en menn halda. En ef Djúpríkið ætlar að hafa sig svona í frammi þurfum við að huga að því að stofna stjórnmálaflokk, breiðfylkingu, sem berst gegn þessu skrímsli sem djúpríkið er. Kemur ekki til greina annað en stoppa þessa baktjaldaspillingu sem hér er.“ Ekki var annað á þeim að heyra en þeim Arnþrúði og Pétri sé full alvara með að stofna nýja stjórnmálahreyfingu sem hefur það á stefnuskrá að berjast gegn spillingu og Djúpríkinu. „Hingað og ekki lengra.“
Dómsmál Fjölmiðlar Tengdar fréttir Arnþrúður dæmd til að greiða Reyni 300 þúsund krónur Arnþrúður Karldóttir útvarpsstjóri var nú rétt í þessu fundin sek um meiðyrði. Ummæli sem hún lét falla í þætti sínum á Útvarpi Sögu voru dæmd dauð og ómerk og var henni gert að greiða 300 þúsund krónur í miskabætur. 11. febrúar 2020 11:40 Arnþrúður áfrýjar meiðyrðadómi sem féll í dag Reynir Traustason segir fyrir öllu að búið er að dæma Arnþrúði ómerking. 11. febrúar 2020 14:58 Mest lesið Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Fleiri fréttir Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Sjá meira
Arnþrúður dæmd til að greiða Reyni 300 þúsund krónur Arnþrúður Karldóttir útvarpsstjóri var nú rétt í þessu fundin sek um meiðyrði. Ummæli sem hún lét falla í þætti sínum á Útvarpi Sögu voru dæmd dauð og ómerk og var henni gert að greiða 300 þúsund krónur í miskabætur. 11. febrúar 2020 11:40
Arnþrúður áfrýjar meiðyrðadómi sem féll í dag Reynir Traustason segir fyrir öllu að búið er að dæma Arnþrúði ómerking. 11. febrúar 2020 14:58