Gnabry elskar að spila í London Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. febrúar 2020 23:00 Þessir tveir sáu um Chelsea í kvöld. Vísir/Getty
Serge Gnabry, leikmaður Bayern München skoraði tvö mörk í kvöld er Bæjarar unnu Chelsea örugglega á Brúnni í Lundúnum. Þýðir það að Gnabry hefur nú skorað jafn mörg mörk í London á tímabilinu og Alexandre Lacazette, framherji Arsenal. Gnabry fór hamförum er Bayern gjörsigraði Tottenham Hotspur fyrr á leiktíðinni. Lokatölur þar 7-2 gestunum frá Þýskalandi í vil. Leikurinn í kvöld var ef til vill ekki jafn slæmur fyrir Lundúnaborg en Chelsea átti samt sem áður aldrei möguleika í þýsku meistarana. Eftir markalausan fyrri hálfleik þá fór þýska vélin að malla og skoraði Gnabry tvívegis á aðeins þremur mínútum. Í bæði skiptin lagði hinn magnaði Robert Lewandowski upp. Þýðir það að Gnabry hefur nú skorað sex mörk í aðeins tveimur leikjum Bayern í Lundúnum á leiktíðinni. Frekar mögnuð tölfræði fyrir mann sem Arsenal seldi á litlar fjórar milljónir punda eftir að hafa talið hann ekki nægilega góðan fyrir lið sitt. Gnabry has scored as many goals in London this season as Alexandre Lacazette— Duncan Alexander (@oilysailor) February 25, 2020
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Bayern pakkaði Chelsea saman á Brúnni | Gnabry óstöðvandi í London Chelsea eru svo gott sem dottnir út úr Meistaradeild Evrópu eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Bayern München. Þýska liðið var einfaldlega mun sterkari aðilinn á Brúnni í kvöld. 25. febrúar 2020 21:45 Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Sjá meira
Bayern pakkaði Chelsea saman á Brúnni | Gnabry óstöðvandi í London Chelsea eru svo gott sem dottnir út úr Meistaradeild Evrópu eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Bayern München. Þýska liðið var einfaldlega mun sterkari aðilinn á Brúnni í kvöld. 25. febrúar 2020 21:45