Tekinn með kókaín innvortis og í fórum sínum Atli Ísleifsson skrifar 22. febrúar 2020 08:08 Maðurinn sætir nú tilkynningaskyldu til 4. apríl næstkomandi, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. vísir/vilhelm
Lögregla á Suðurnesjum handtók fyrr í mánuðinum erlendan karlmann eftir að tollgæslan hafði stöðvað hann vegna gruns um að hann væri með fíkniefni meðferðis. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn hafi reynst vera með tvær kókaínpakkningar í fórum sínum og fjórar til viðbótar innvortis. Við skýrslutöku hafi hann sagst hafa gripið til þess ráðs að smygla eiturlyfjum til Íslands í þeim tilgangi að geta greitt skuld við ónafngreinda menn erlendis. Sagðist maðurinn hafa staðið einn að tilrauninni til smygls og hefði ætlað að koma þeim í verð hér á landi. Maðurinn sætir nú tilkynningaskyldu til 4. apríl næstkomandi, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. Staðinn að búðarhnupli Einnig segir frá því að karlmaður hafi verið færður til skýrslutöku á lögreglustöð eftir að hafa verið staðinn að því að stela vörum úr verslun í Njarðvík í vikunni. Maðurinn hafði stungið inn á sig kremi, tannkremi og sjampói. „Starfsmenn verslunarinnar stóðu hann að hnuplinu og voru með hann inni á verslunarstjóraskrifstofu þegar lögreglumenn á Suðurnesjum mættu á vettvang. Maðurinn var færður til skýrslutöku á lögreglustöð,“ segir í tilkynningunni.
Keflavíkurflugvöllur Lögreglumál Reykjanesbær Tollgæslan Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira