Þrír frá Capacent til KPMG Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2020 10:38 Grétar Árnason, Hjálmur Hjálmsson og Styrmir Geir Jónsson. KPMG
Grétar Árnason, Hjálmur Hjálmsson og Styrmir Geir Jónsson hafa verið ráðnir til starfa hjá ráðgjafasviði KPMG. Allir störfuðu þeir áður hjá Capacent. Í tilkynningu kemur fram að Grétar hafi þegar hafið störf og mun hann sérhæfa sig í ráðgjöf tengdri upplýsingatækni með sérstaka áherslu á viðskiptagreind og gagnahögun. „Frá árinu 2011 til 2020 hefur Grétar starfað sem ráðgjafi hjá Capacent með áherslu á innleiðingu á Qlik viðskiptagreindarhugbúnaði ásamt öðrum verkefnum tengd viðskiptagreind. Meðal annarra verkefna hefur hann unnið að uppbyggingu vöruhús gagna, skýrslu gerð og forritun. Grétar lauk námi í kerfisfræði frá HR 2001 og hefur starfað við upplýsingatækni síðan þá. Hjálmur Hjálmsson Hjálmur Hjálmsson hefur hafið störf á ráðgjafasviði KPMG og mun Hjálmur sérhæfa sig í ráðgjöf um breytta starfshætti og hagnýtingu tækni, með áherslu á innleiðingu á Microsoft lausnum. Hjálmur hefur um árabil verið leiðandi í breytingarferli hjá opinberum aðilum og haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða fyrir stjórnendur um breytta starfshætti, með sérstaka áherslu á hagnýtingu á tækni og teymisvinnu. Þá hefur Hjálmur aðstoðað fyrirtæki og stofnanir í stafrænum umskiptum. Hjálmur starfaði áður sem ráðgjafi hjá Capacent og hefur auk þess unnið að verkefnastýringu og ráðgjöf í stafrænum umskiptum hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hann er með B.Ed gráðu í kennslufræðum frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í Vatnafræði og Vatnajarðfræði frá Stockholm University. Styrmir Geir Jónsson Styrmir Geir Jónsson hefur hafið störf á ráðgjafasviði KPMG og mun Styrmir sérhæfa sig í ráðgjöf tengdri upplýsingatækni með sérstaka áherslu á öryggismál skýja- og Microsoft lausna. Styrmir hefur starfað í upplýsingatækni frá árinu 1994, fyrst hjá Varnarliðinu í rekstrar- og öryggismálum fram til ársins 2006, og svo til skamms tíma sem ráðgjafi hjá Opnum Kerfum. Frá árinu 2008 starfaði Styrmir sem ráðgjafi og upplýsingatæknistjóri hjá Capacent á Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu.
Vistaskipti Mest lesið Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Viðskipti innlent Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Viðskipti innlent Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Viðskipti innlent Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Viðskipti innlent Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Atvinnulíf Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Viðskipti innlent Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Sjá meira