Viltu vinna gistingu á Akureyri? Acco 4. september 2020 09:50 Acco Luxury Apartments og Acco Guesthouse eru staðsett í hjarta Akureyrar. Daníel Starrason Eftir mikla ferðagleði Íslendinga í sumar verður spennandi að sjá hvernig veturinn verður hjá landanum. Margir aðilar í ferðaþjónustu búa sig undir veturinn með því að höfða til fólks með tilboðum. Þar er vert að nefna Acco Luxury Apartments og Acco Guesthouse á Akureyri. Helga Björk Eiríksdóttir eigandi Acco á Akureyri hvetur fólk til að njóta ferðalaga um landið í haust og vetur. „Íslendingar voru mjög duglegir að heimsækja okkur í sumar og við Norðlendingar hvetjum fólk til þess að halda áfram að ferðast um landið í haust og vetur,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, eigandi Acco á Akureyri en á facebook síðu Acco er nú í gangi leikur þar sem hægt er að vinna gistingu fyrir fjóra með morgunmat á Berlín og dekri í Bjórböðunum á Árskógsströnd. „Við hefjum haustið með þessum skemmtilega leik til að kynna frábær haust- og vetrartilboð á gistingu hjá okkur,“ segir Helga Björk. „Íbúðirnar eru mjög þægilegar fyrir fjölskyldufólk og hópa en í hverri íbúð er fullbúið eldhús með uppþvottavél og öllum helstu græjum. Einnig eru þvottavélar í öllum íbúðum sem getur komið sér afar vel á ferðalögum. Við erum vel staðsett í hjarta bæjarins og spennandi afþreying og veitingastaðir eru í göngufæri.“ Afar vel fer um gesti á Acco.Daníel Starrason „Akureyri er mikil vetrarperla og Norðurland allt er paradís heim að sækja á haustin og yfir vetrartímann. Ég vona að við verðum svo „heppin“ að snjórinn komi snemma enda er frábært að koma hingað á skíði en fram að skíðavertíð má stunda hér margs konar útivist svo sem fjallgöngur, hjólreiðar og siglingar. Það er afar öflugt menningarlíf hér á svæðinu sem við vonum að glæðist þegar samkomutakmarkanir verða rýmkaðar og að hér verði jafn skemmtilegt í vetur eins og undanfarin ár. Má þar nefna leikhús, tónleika og listsýningar. Við vonumst til að sjá sem flesta hér fyrir norðan í vetur.“ Íbúðirnar eru vel búnar og þægilegar fyrir fjölskyldur á ferð og hópa.Daníel Starrason Vetrartilboð Acco má finna á acco.is en sem dæmi má nefna að gisting í íbúð fyrir allt að sex gesti í þrjár nætur kostar einungis kr. 60.000. Vikudvöl í íbúð sem rúmar allt að átta manns kostar kr. 110.000.- Vert er að taka fram að hægt er að nýta ferðagjöfina til að greiða fyrir gistingu á Acco. Hér er hægt að taka þátt í Facebook leik Acco. Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Akureyri Lífið Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira
Eftir mikla ferðagleði Íslendinga í sumar verður spennandi að sjá hvernig veturinn verður hjá landanum. Margir aðilar í ferðaþjónustu búa sig undir veturinn með því að höfða til fólks með tilboðum. Þar er vert að nefna Acco Luxury Apartments og Acco Guesthouse á Akureyri. Helga Björk Eiríksdóttir eigandi Acco á Akureyri hvetur fólk til að njóta ferðalaga um landið í haust og vetur. „Íslendingar voru mjög duglegir að heimsækja okkur í sumar og við Norðlendingar hvetjum fólk til þess að halda áfram að ferðast um landið í haust og vetur,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, eigandi Acco á Akureyri en á facebook síðu Acco er nú í gangi leikur þar sem hægt er að vinna gistingu fyrir fjóra með morgunmat á Berlín og dekri í Bjórböðunum á Árskógsströnd. „Við hefjum haustið með þessum skemmtilega leik til að kynna frábær haust- og vetrartilboð á gistingu hjá okkur,“ segir Helga Björk. „Íbúðirnar eru mjög þægilegar fyrir fjölskyldufólk og hópa en í hverri íbúð er fullbúið eldhús með uppþvottavél og öllum helstu græjum. Einnig eru þvottavélar í öllum íbúðum sem getur komið sér afar vel á ferðalögum. Við erum vel staðsett í hjarta bæjarins og spennandi afþreying og veitingastaðir eru í göngufæri.“ Afar vel fer um gesti á Acco.Daníel Starrason „Akureyri er mikil vetrarperla og Norðurland allt er paradís heim að sækja á haustin og yfir vetrartímann. Ég vona að við verðum svo „heppin“ að snjórinn komi snemma enda er frábært að koma hingað á skíði en fram að skíðavertíð má stunda hér margs konar útivist svo sem fjallgöngur, hjólreiðar og siglingar. Það er afar öflugt menningarlíf hér á svæðinu sem við vonum að glæðist þegar samkomutakmarkanir verða rýmkaðar og að hér verði jafn skemmtilegt í vetur eins og undanfarin ár. Má þar nefna leikhús, tónleika og listsýningar. Við vonumst til að sjá sem flesta hér fyrir norðan í vetur.“ Íbúðirnar eru vel búnar og þægilegar fyrir fjölskyldur á ferð og hópa.Daníel Starrason Vetrartilboð Acco má finna á acco.is en sem dæmi má nefna að gisting í íbúð fyrir allt að sex gesti í þrjár nætur kostar einungis kr. 60.000. Vikudvöl í íbúð sem rúmar allt að átta manns kostar kr. 110.000.- Vert er að taka fram að hægt er að nýta ferðagjöfina til að greiða fyrir gistingu á Acco. Hér er hægt að taka þátt í Facebook leik Acco.
Vetrartilboð Acco má finna á acco.is en sem dæmi má nefna að gisting í íbúð fyrir allt að sex gesti í þrjár nætur kostar einungis kr. 60.000. Vikudvöl í íbúð sem rúmar allt að átta manns kostar kr. 110.000.- Vert er að taka fram að hægt er að nýta ferðagjöfina til að greiða fyrir gistingu á Acco. Hér er hægt að taka þátt í Facebook leik Acco.
Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Akureyri Lífið Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira