Segir að kórónuveirufaraldurinn hafi hjálpað Vålerenga að fá Viðar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2020 14:30 Viðar Örn Kjartansson var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Vålerenga. getty/Stanislav Krasilnikov
Það tók Viðar Örn Kjartansson aðeins átta mínútur og 45 sekúndur að skora þrennu í fyrsta leik sínum fyrir Vålerenga þegar liðið lagði Brann að velli, 5-1, í norsku úrvalsdeildinni í gær. Dag-Eilev Fagermo, þjálfari Vålerenga, var að vonum ánægður með Viðar eftir leikinn og sagði að ef ekki hefði verið fyrir kórónuveirufaraldurinn hefði Selfyssingurinn líklega endað í sænsku úrvalsdeildinni. Viðar kom til Vålerenga á frjálsri sölu frá Rostov í Rússlandi. „Kórónuveiruástandið er mjög sorglegt. En til að vera alveg heiðarlegur hefðum við átt í vandræðum með að fá Viðar ef ekki hefði verið fyrir faraldurinn,“ sagði Fagermo. „Stór félög í Svíþjóð vildu fá hann. En þau hafa orðið fyrir þungu fjárhagslegu höggi vegna áhorfendaleysis. Okkur hefur ekki blætt á sama hátt.“ Viðar var m.a. orðaður við Malmö og Hammarby en endaði hjá Vålerenga. Hann lék með liðinu 2014 og varð þá markakóngur norsku úrvalsdeildarinnar. Viðar hefur alls skorað 34 mörk í 34 leikjum með Vålerenga. Liðið er í 5. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Norski boltinn Tengdar fréttir Viðar Örn stimplaði sig inn með þrennu á 8 mínútum Viðar Örn Kjartansson var ekki lengi að stimpla sig inn að nýju í lið Valerenga. 13. september 2020 20:31 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira
Viðar Örn stimplaði sig inn með þrennu á 8 mínútum Viðar Örn Kjartansson var ekki lengi að stimpla sig inn að nýju í lið Valerenga. 13. september 2020 20:31