Ekki verið neðar á heimslistanum í sjö ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. september 2020 09:53 Íslenska landsliðið er í 41. sæti styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í morgun. Vísir/Hulda Margrét
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer niður um tvö sæti á styrkleikalista FIFA og er í 41. sæti hans. Ísland hefur ekki verið neðar á styrkleikalistanum síðan 2013, eða í sjö ár. Ísland hefur leikið tvo leiki síðan styrkleikalistinn var síðast gefinn út í júlí og tapaði þeim báðum; 0-1 fyrir Englandi og 5-1 fyrir Belgíu sem er enn á toppi listans. Englendingar eru í 4. sæti listans. Frakkar eru í 2. sæti og Brasilíumenn í því þriðja. Engin breyting varð á stöðu efstu fjögurra liðanna á listanum. Rúmenía, sem Ísland mætir í umspili um sæti á EM í næsta mánuði, fer upp um þrjú sæti og er í 34. sæti listans, sjö sætum á undan Íslandi. Besti árangur Íslands á listanum er 18. sæti sem náðist í febrúar 2018. Síðan þá hafa Íslendingar hrapað niður listann. Danmörk er efst Norðurlandaþjóðanna, í 16. sæti, tveimur sætum ofar en Svíþjóð. Ísland er þremur sætum fyrir ofan Noreg sem Lars Lagerbäck þjálfar. Norðmenn standa í stað á listanum. Finnland er í 56. sæti listans og Færeyjar í 107. sæti. Rússar eru hástökkvarar listans að þessu sinni en þeir fara upp um sex sæti. Listann í heild má sjá með því að smella hér.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Sjá meira