Bólusetningin verður Norðmönnum að kostnaðarlausu Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2020 13:02 Bent Høie er heilbrigðisráðherra Noregs. EPA/Håkon Mosvold Larsen
Bent Høie, heilbrigðisráðherra Noregs, segir að það verði Norðmönnum að kostnaðarlausu að bólusetja sig gegn kórónuveirunni þegar þar að kemur. Reikningurinn falli á norska ríkið, en hann vonast til að hægt verði að hefja bólusetningar snemma á næsta ári. Høie kynnti fyrir norskum þingheimi í morgun hver staðan væri í landinu á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Lagði hann áherslu á að ríkisstjórnin óski þess að bóluefnið verði aðgengilegt Norðmönnum um leið og það er tilbúið. „Við vonumst til að geta hafið bólusetningar þegar snemma 2021, en tímapunkturinn er háður því hvenær lyfjayfirvöld veita samþykki sitt,“ sagði Høie. Ráðherrann sagði að bólusetningum yrði einstaklingum að kostnaðarlausu, auk þess að norska ríkið myndi leggja út fyrir þeim kostnaði sem myndu leggjast á norsk sveitarfélög og sjúkrahús vegna skipulagningar og framkvæmd bólusetningarinnar. Áður hefur verið greint frá því að fólk í áhættuhópi og heilbrigðisstarfsmenn verði bólusett fyrst í Noregi.
Noregur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira