Ólafur Andrés og Teitur Örn markahæstir í enn einum sigri Kristianstad Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. október 2020 18:35 Ólafur Andrés (sjá mynd) og Teitur Örn eru á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar. Christoffer Borg Mattisson/BILDBYRÅN
Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson áttu báðir stórleik í liði Kristianstad sem vann stórsigur á Lugi með 14 marka mun á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur 38-24. Þá lék Daníel Freyr Andrésson í stóru tapi Eskilstuna Guif er liðið tapaði gegn Malmö á heimavelli. Lokatölur 30-21 Malmö í vil. Frábært gengi Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta hélt áfram í kvöld er liðið fékk Lugi í heimsókn. Skemmst er frá því að segja að Kristianstad vann öruggan sigur eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik, staðan þá 18-10. Heimamenn bættu við í síðari hálfleik og unnu á endanum 14 marka sigur. Lokatölur 38-24 eins og áður sagði. Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson áttu enn einn stórleikinn í liði heimamanna sem tróna á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Voru þeir báðir markahæstir með sjö mörk hvor. Kristianstad er nú þremur stigum á undan Ystad og á einnig leik til góða. Var þetta aðeins annað tap Lugi á tímabilinu en gestirnir eru í 4. sæti deildarinnar. Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson átti líkt og allir samherjar sínir í Eskilstuna Guif ekki góðan dag er liðið fékk Malmö í heimsókn. Fór það svo að Malmö vann einkar þægilegan níu marka sigur, lokatölur 21-30. Daníel Freyr og félagar í GUIF sitja sem stendur í 9. sæti deildarinnar.
Handbolti Sænski handboltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira