Viðskipti innlent

Hilma og Viktor til liðs við stofu Sævars Þórs

Atli Ísleifsson skrifar
Hilma Ósk Hilmarsdóttir og Viktor Marinó Alexandersson.
Hilma Ósk Hilmarsdóttir og Viktor Marinó Alexandersson. Aðsendar

Hilma Ósk Hilmarsdóttir og Viktor Marinó Alexandersson hafa verið ráðin til starfa á lögmannsstofuna Sævar Þór & Partners.

Í tilkynningu kemur fram að sérhæfing Hilmu sé heilbrigðisréttur, kröfuréttur, barnaréttur, skaðabótaréttur og félagaréttur.

„Hilma útskrifaðist með Master frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Hún starfaði áður hjá lögmannsstofunni Réttur-Aðalsteinsson & partners.

Viktor er laganemi við Háskóla Íslands en hann stefnir á að útskrifast næsta vor. Fyrirhuguð sérhæfing hans er réttarfar, vinnuréttur, félagaréttur, eignaréttur og stjórnsýsluréttur,“ segir í tilkynningunni.

Aðaleigandi stofunnar er Sævar Þór Jónsson lögmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×